Þá er fyrstu námsvikunni lokið, og merkilegt nokk tókst mér að lifa hana af. Verð samt að viðurkenna að það var ansi erfitt að koma sér framúr kl 7:30 á miðvikudag og fimmtudag. Búinn að kynnast tveimur kennurum í viðbót, Dr Hyatt sem lítur út fyrir að vera um 25 ára og Prof. Matthews sem er deildarstjóri efnisverkfræði deildar. Það sem hefur komið mér mest að óvart er það hvað allir eru almennilegir. Bjóst fastlega við að kennararnir væru í hálfgerðum fílabeinsturnum, en það er alls ekki svo.
Síðasta föstudag kom kærasta Julian í heimsókn. Hún heitir Miranda og er spænsk. Hún var mjög almennileg á áhugaverð, en merkilegast var þó að persónuleikinn var nákvæmlega eins og persónuleiki Julians. Það var eins og að hafa einn persónuleika í hvoru kyni. Á föstudagskvöldið var áætlunin sú að láta Varun elda, en fékk hann slæman kvebba og treysti sér ekki til að elda. Ég tók það að mér að elda grænmetispastarétt sem var bara skrambi góður. Síðan skelltum við okkur í "afmælispartý" Rich, herbergisfélaga Julians. Frekar fámennt og ómerkilegt, en stóð þar að auki frekar stutt. Eftir það skiptist hópurinn, Miranda og Julian fóru með Rich og félögum í bæinn, meðan Varun, Manuela og ég fórum í partý sem nokkrir úr internationals week voru að halda. Sátum þar langt fram á nótt að spjalla við fólk sem við höfðum ekki séð í tvær vikur. Ég kynntist einnig nokkrum könum og slatta af öðrum. Síðan röltum við V og M heim um fjögurleitið.
Í gærkveldi fórum við út að borða og sátum fram undir miðnætti að spjalla, vantaði bara Manuelu. Vorum á amerískum veitingastað, þar sem japlað var á ekta amerískum steikum.
Þegar ég kom heim ákvað ég samt að gera eitt sem virðist svolítið skrítið. Ég fór að þvo þvott, eftir miðnætti. Þannig standa mál að það er alltaf svo löng bið eftir vélum á daginn, að ég hef frestað því svolítið að þvo þvott. En ég tók bara iPodinn og þvottinn upp í "the Edge", setti í þrjár vélar og sat þar í makindum til 3 um nóttina að þvo þvottinn minn. Núna er semsagt allt orðið hreint og fínt.
Sunday, 7 October 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Auðvitað þvær maður á nóttunni þegar það er ekkert að gera!
Post a Comment