Wednesday, 27 February 2008

Meira að gerast

Jæja skólinn er kominn á fullt skrið. Á síðustu dögum prentaði ég glósur og slideshow fyrir einn áfangann sem nema rúmum 450 blaðsíðum!!! Þetta er svo mikið að ég fæ enga möppu hér sem rúmar þessu almennilega!!! Í gær var extra langur dagur... annars vegar þar sem ég var í tímum frá 9 til 16, hins vegar af því að ég hafði varla sofið meira en tvo tíma nóttina áður. Var kominn með ansi mikinn svefngalsa þegar deginum loksins lauk. Dagurinn var annars áhugaverður, lærði um hvernig ofurleiðarar virka. Síðan eftir verklega tímann í eftirmiðdaginn fór ég að spjalla við Dr. Morley, sem sér um verklegu tímana á þessarri önn. Komst meðal annars að því til hvers hún ætlaðist frá okkur á þessarri önn og af hverju það væri. Verklegu tímarnir hingað til hafa verið frekar ömurlegir, bæði vegna hugmyndaleysis í hönnun tilrauna og oft lélegs tækjabúnaðar, og maður hefur tekið tilraununum misvel. Hins vegar er það hennar starf að tryggja það að við getum gengið almennilega um tilraunastofurnar og skilað inn úthugsuðum niðurstöðum, þrátt fyrir áhugaleysi.
Verkefnið mitt fyrir þessa önn, í stað stærðfræðinnar, er síðan að hefjast. Verkefnið er byrjunarverkefni úr sumarskóla sem er rekinn í Sheffield fyrir doktorsnema. Það snýst aftur um sams konar hluti og á síðustu önn en er útfært með tilliti til krafta einda og orku kerfis. Þetta er þó nokkuð flóknara ferli og inniheldur mun meiri og flóknari útreikninga fyrir eindirnar. En þetta verður annars örugglega áhugavert þegar lengra er komið. Hef líka verið að spá í að nöldra aðeins og athuga hvort ég geti fengið þessar einkunnir inn í verklega áfangann frekar en stærðfræði áfangann, enda tek ég hvort eð er próf í stærðfræðinni. Annars er frekar fátt að frétta annars, ef einhver hefur skemmtilegar spurningar um námið látið mig bara vita... efast um að margir vilji að ég fari út í smáatriði á síðunni, en er samt alltaf til í það.

Friday, 22 February 2008

Ýmislegt

Byrja á því að nefna að ég er búinn að fá þrjár af fjórum einkunnum, "óformlega". Þær voru aðeins lægri en ég var að vonast, en ég kvarta ekki.
Structure and bonding: 70%
Functional materials: 68%
Engineering Mathematics: 100%
Síðan ætla ég að leggja fram spurningu fyrir vísindaáhugamennina: Hvar er heitasti staðurinn í sólkerfinu?
Margir myndu segja inni í sólinni... en það er víst ekki rétt. Heitasti staðurinn í sólkerfinu er í Culham, Oxfordshire. Þar er rannsóknastöð sem er að vinna í kjarnasamrunarannsóknum með það í huga að skoða möguleika á orkuframleiðslu. Plasmað sem er inni í tokamakinum þeirra nær um 100 milljóna gráða hita. Ég fór nefnilega á kynningu á kjarnasamruna-raforkuframleiðslu á vegum deildarinnar síðasta miðvikudag. Það var rosalega áhugaverð kynning, og kom í ljós að tvö af þremur helstu vandamálunum sem eru enn óleyst eru efnisfræðilega. Þar að auki var sýnt video af flæðimódeli í einum rúmsentímetra af plasmanu. Það tók öflugustu tölvu heims, BlueGene/L viku að reikna keyra þetta módel.
Annars verður þetta frekar hæg helgi... Julian ætlar að elda mat handa okkur í kvöld... síðan bara rólegt annars.

Monday, 18 February 2008

Fyrsta vikan

Jæja, þá er fyrstu vikunni lokið og önnur vikan hafin. Fögin virðast mun áhugaverðari en á síðustu önn. Förum yfir nýju fögin:
  1. Advanced Materials Technology - Fjallar um þrjá efnisflokka; Gler, Stál og Fjölliður. Þetta er rosalega áhugaverður áfangi og snýst um eiginleika og framleiðslutækni þessarra efna.
  2. Functional Materials II - Skipt í tvo hluta, rafmagnseiginleika efna annars vegar og seguleiginleika efna hins vegar. Virðist ansi áhugavert fag.
  3. Where to? How Fast? - eða á venjulegu máli Thermodynamics and Kinetics. Mjög skemmtilegir kennarar og virðast þeir ætla að tengja þetta að miklu leiti við önnur fög.
Síðan eru aðrir áfangar sem eru framhald af áföngum á síðustu önn en við skulum ekkert fara í þá frekar.
Síðasta föstudag fórum við Raj og Julian að ganga frá íbúð fyrir næsta ár. Við verðum í nýrri byggingu sem heitir Aspect 3. Því miður þurftum við þó að fara í 4 herbergja íbúð, þannig að við verðum með annan herbergisfélaga. Konan sem verður umsjónamaður byggingarinnar stakk upp á að koma stelpu fyrir hjá okkur, þar sem við töldum henni trú um að við værum ekki fólk sem væri á stanslausu djammi. Það verður áhugavert að sjá hvort stúlkukindin þoli að búa með þremur gaurum... með sjúkan húmor.
Um kvöldið fórum við í mat til Manuelu, og sötruðum öl fram eftir nóttu. Á laugardagskvöldið fórum við Manuela út að borða á afrískum/karabískum veitingastað það var svolítið fyndið þar sem allt var skreitt fyrir Valentínusardaginn, og loftið var farið að minnka í blöðrunum. Um kvöldið fórum við síðan að sötra hvítvín og horfa á Family Guy. Síðan fórum við niður á næstu hæð að drekka með nágrönnum okkar.
Í dag fór ég að hitta Prof. Harding. Hann var rosalega ánægður með verkefnið mitt á síðustu önn og sagði að þetta hefði verið "First", semsagt hæsti einkunnarflokkur. Það eina sem hann setti út á verkefnið er að ég númeraði ekki myndirnar, og notaði kommur á einum stað í útreikningum (þeir nota punkta1/4 = 0.25). Síðan fórum við að spjalla um næsta verkefni. Ég á að skoða svokallað Lennard Jones Model og Verlet algorithm, og líklegast verður það verkefnið mitt. Ég byrja á því að gera þetta í tvívídd og ef það gengur vel fæ ég að yfirfæra það í þrjár víddir. Hins vegar tekur það svo mikla vinnslu þannig að ég get fengið aðgang að 60 Intel Opteron Cluster til að keyra módelið. Allir tölvunarfræðingar ættu að slefa núna. Þetta er þó gamli clusterinn, er ekki nógu mikilvægur fyrir nýja clusterinn. Annars verður þetta spennandi önn.
Núna ætla ég að setja inn nokkrar áhugaverðar staðreyndir sem ég hef lært síðustu viku.
  • 90% af stáltegundum voru hannaðar á síðustu 10 árum
  • Til þess að gera bestu sverðin þurftu járnsmiðir að nota vatnslausn sem innihélt mikið af kolefni til að kæla sverðið. Þess vegna stungu þeir sverðunum í gegnum þræla og dýr til að kæla þau.
  • Ástæðan fyrir sífellt hækkandi álverði er það að í sífellt fleiri rafmagnssnúrum er verið að nota ál í stað gamla koparsins. Auk þess eru litlar líkur á því að álið klárist á næstu nokkur þúsund árum
  • Varmaleiðnifræði (Thermodynamics) er mest hataða fag meðal verkfræðinga.
  • Á síðustu 2 mánuðum hefur deildin mín fengið 6,7 milljónir punda í rannsóknarstyrki frá fyrirtækjum.

Wednesday, 13 February 2008

Enn meiri afsakanir

Biðst enn einu sinni afsökunnar á þessu bloggleysi. Ég skal núna fara yfir síðustu vikuna.
Mánudagur, síðasta prófinu lauk kl 15:30. Ég Raj, Julian og Manuela fórum út að borða saman. Eftir það fórum við Manuela heim til mín og fórum á hörkufyllerí með sambýlismönnum mínum (Julian og Raj voru að fara í próf). Ópal-skot fram eftir nóttu, og almennt gaman.
Frekar fátt gerðist síðan fram á föstudag. Á föstudeginum fórum við Matt og Ryan til Leeds og Saltaire. Skoðuðum Saltaire og Hockney safnið. Síðan var farið á Whitelocks pöbbinn í Leeds, stofnaður 1705. Við skoðuðum líka the Corn Exchange, áhugaverða byggingu sem minnir helst á loftbelg. Síðan gerðist ekkert fram á sunnudagskvöld. Þá hitti ég nokkra deildarfélaga, og voru veglegar veigar hafðar um hönd. Skólinn byrjaði síðan á mánudaginn. Áfangarnir virðast mun áhugaverðari en á síðustu önn.
Í kvöld hittumst við Manu, Julian, Raj og Yuan (kærasta Raj í heimsókn frá Malasíu). Fórum á pöbb og skemmtum okkur konunglega. Það er gott að vera kominn með hópinn almennilega saman á ný. Síðan er skóli fram eftir viku og síðan verður hörku-gaman hjá okkur á föstudagskvöld þegar við ætlum að elda og skemmta okkur saman.
Annars er lífið bara gott... nóg gaman framundan.

Friday, 1 February 2008

Bloggfríi lýkur

Ég vil byrja á að biðjast afsökunnar á bloggleysinu. Þannig standa mál að ég hef verið í prófundirbúningi og prófum síðustu þrjár vikur. Þannig að það hefur nákvæmlega ekkert áhugavert gerst síðan ég kom út. Síðasta mánudag var Structure and Bonding, og ég er viss um að fá yfir 80%. Síðan á miðvikudag var Functional Materials, og er ég nokkuð viss um að fá yfir 70%. Að lokum tók ég stærðfræðipróf í gær og býst ég við yfir 90 á því. Sem betur fer er prófunum að fara að ljúka. Aðeins eitt próf eftir, Stjörnufræði, næsta mánudag. Þangað til er ekkert að fara að gerast. Ég skal því blogga næst á mánudag.