Friday, 7 December 2007

I'm baaaack

Biðst afsökunar á því að hafa ekkert skrifað síðustu vikur. Þannig standa mál að ég hef verið á fullu við lærdóminn, og sé varla fyrir endann á því. Ég hef haft nóg að gera að gera skilaverkefni og ganga frá pródéktinu mínu. Sem betur fer þetta að klárast, og þá kemst ég heim í góða matinn hjá Múttu og Ömmu. Því miður hefur ansi fátt gerst á þessu tímbili, þannig að aðeins námstengdar fréttir.
Ég minnist þess að í gamla daga þá gat maður flett upp á netinu þegar maður var í vandræðum með heimalærdóminn. Núna, hinsvegar, gengur slíkt ekkert. Þegar maður flettir upp efni spurninganna fær maður ekkert nema fræðigreinar, sem eru of langar og sérhæfðar til þess að gagnast manni.
Prof Harding er ennþá ánægður með vinnuna á verkefninu mínu. Ég á aðeins eftir að skrifa report fyrir verkefnið og þá verður því lokið.
Ég er kominn með 7 í einkunn í stærðfræði áður en ég hef tekið prófið!!! Þannig standa mál að próf og verkefni á önninni gilda 50% af einkunninni. Þ.a.a. fáum við auka 20% fyrir að klára einfalt aflfræði verkefni. Þannig að ég er kominn með 7, og stefni á að fá 12 í lokaeinkunn, eftir að hafa dúxað prófið.
Að lokum ætlaði ég að skella inn nokkrum myndum sem koma frá verkefninu mínu. Smellið á þær til að sjá þær í fullri stærð
Þetta er svokallað angular deposition myndir. Þar myndast svona hálfgerð "tré" er agnirnar falla, kallað "dendrite arms".

Næsta mynd er svokallað ballistic deposition. Þar mynda "götin" trjákennda strúktúra.
Að lokum er random deposition, annars vegar með "particle settling" og síðan án þess.

Friday, 23 November 2007

Afmæli

Þá er önnur vika að líða, og ég sit í leiðinlegast tíma vikunnar. Áfanginn heitir Microstructure and Mechanical properties of materials, og er kenndur af Prof. Matthews (deildarstjóri Engineering Materials). Fyrir utan það að við sitjum áfangann með Aerospace fólkinu, sem þýðir að við erum 100-150, þá er yfirferðin hans svo asnaleg að maður lærir ekkert af því. Hann er maður sem á að halda sig við rannsóknir, og hætta að kenna.
Síðasta miðvikudag átti Julian afmæli. Hann er nú orðinn tvítugur, og við héldum upp á það með glæsibrag. Við gáfum honum þ.a.a. afmælisgjöf, Löwepro Slingshot myndavélatösku. Hann var hæstánægður með hana. Síðan gaf móðir kærustunnar hans honum svítu í London handa þeim yfir þessa helgi. Þar sem þau hittast aðeins á nokkurra mánaða fresti þá verður gaman hjá þeim um helgina. Annars er frekar fátt framundan, bara vinnuhelgi og meiri vinna í næstu viku,

Monday, 19 November 2007

Gaman

Voðalega er gaman þegar svona margir kvitta á síðuna!!! Sömuleiðis gaman að heyra frá öðrum Englandsfara. Btw. Kiddi, manstu eftir Ellen/Ellen, manstu eftir Kidda.
Fór, eins og í hverri viku, til Dr. Harding á föstudaginn. Hann hefur umsjón yfir verkefninu mínu, þannig að ég hitti hann vikulega og fer yfir það sem ég hef gert. Ég er búinn að skrifa kóðann fyrir helminginn af verkefninu mínu, og ætti að klára restina í næstu viku. Ég sýndi honum keyrslu á forritinu fyrir "Random deposition" og "ballistic deposition" og sagði hann að hann væri hæstánægður með frammistöðu mína. Síðan nefndi hann að ég ætti að íhuga hvað ég myndi vilja gera eftir áramót, byggja ofan á þetta verkefni eða fara í eitthvað nýtt. Ég sagðist vera til í hvort sem er, en myndi alls ekki afþakka að læra eitthvað nýtt. Hann kom með nokkrar tillögur, en nefndi síðan að það væri reyndar farið nánar í þetta efni á 3 og 4 ári. Múhahaha!!!
Síðan var helgin bara frekar róleg, bara horft á DVD og spilað Wii á kvöldin. Lærði þó yfir daginn. Framundan er algjör verkefnamartröð. Það eru 5 vikur eftir af önninni, og á þeim tíma eru 6 skilaverkefni, 2 próf, 1 ritgerð og náttúrulega skýrsla úr verkefninu mínu. En maður huggar sig bara við það að maður hefur haft það ansi gott hingað til. Þar að auki fer tímunum fækkandi þegar nær dregur jólafríið, þar sem flestir kennararnir ætla sér að klára efnið snemma.

Wednesday, 14 November 2007

Bloggfrí

Það er þónokkuð síðan ég bloggaði síðast, en það hefur þónokkuð gerst síðan þá. Í síðustu viku var skills week. Við hlustuðum á fyrirlestra frá IOM3 og fleirum varðandi okkar fag. Síðan kynntist ég nokkrum eldri nemendum sem höfðu farið í "placement" á síðasta ári. Ansi áhugaverðir guttar. Síðan fórum við í heimsóknir til Corus í Scunthorpe, Guardian Industries í Goole og JRI hér í Sheffield. Það var ansi áhugavert að þeir voru að reyna að "selja" okkur fyrirtækin á fyrsta árinu okkar. Það var verið að tala um möguleg tækifæri hjá fyrirtækjunum og meðallaun. Síðan unnum við hópverkefni, sem ég reyndar gerði nánast einn þar sem hinir stóðu sig ekki í stykkinu. Við enduðum í 3 sæti af 6, sem var ekki svo slæmt því hluti af einkunninni var að allir leggðu eitthvað fram. Síðan kom Palli í heimsókn yfir helgina. Það var haldið smá teiti heima hjá mér á föstudagskvöldinu, og var nóg um drykkju og sora. (Hvað sem Palli segir, þá spillti ég honum ekki, hann gerði það sjálfur). Síðan fórum við á Varsity á laugardagskvöldið og héldum okkar striki áfram. Á sunnudeginum fórum við síðan með John í bíltúr um Derbyshire, til að taka eitthvað af myndum. Þá fékk Palli loksins að sjá að það er meira en bara næturlíf í Sheffield, einnig fögur náttúruverndarsvæði. Síðan sendum við hann til London á Sunnudagskvöldinu. Annars var bara helgin góð, að mínu mati.
Á mánudeginum fór ég síðan og keypti sjónvarp fyrir íbúðina. 37" Samsung frá John Lewis varð fyrir valinu, og kostaði það 649 pund. Það var síðan ansi skondið að þegar ég kíkti á heimasíðu John Lewis í gær var búið að hækka verðið um 100 pund!!!
Annars er fátt planað á næstunni, líklegast bara DVD kvöld um helgina.

Friday, 2 November 2007

This one goes out to all the musical mathematicians out there!!!

Wednesday, 31 October 2007

Hrekkjavaka, og afmæli afa.

Vikan er komin vel á veg og tími til að líta á hvað hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Ekkert!!! Það var frekar róleg helgi og síðan hefur það bara verið námið. Hef verið að vinna undirbúningsvinnu fyrir verkefnið, kynna mér formúlur sem kunna að tengjast verkefninu og safna gögnum um hvernig sé best að snúa sér í forrituninni.
Í kvöld er síðan hrekkjavaka og skilst mér að nokkrir af herbergisfélögum mínum hafi ákveðið að halda teiti í íbúðinni okkar, þannig að það verður erfitt að vakna fyrir tímann kl. 9 í fyrramálið. Við sjáum hvernig það gengur annars. Ég er ekki búinn að finna mér búning, en ef allt annað bregst þá klæðist ég bara grænum buxum, hvítri skyrtu og gleraugum og segist vera Peter úr Family Guy. Þið verðið að viðurkenna að við erum ansi líkir.
Í næstu viku verður síðan "Skills Week". Þá vinnum við í hópverkefni og förum í heimsóknir í fyrirtæki, s.s. JRI, Corus og Guardian Glass. Þetta verður líklegast áhugavert en ég hef samt ákveðnar áhyggjur af því að við þurfum að vera mætt kl 8 eða kl 9 alla dagana. I don't do mornings!!!
Blogga meira þegar eitthvað er að frétta.

Wednesday, 24 October 2007

Skóli, og meiri skóli

Það hefur verið nóg að gera í þessarri viku og það bíður enn meira. Tók mitt fyrsta próf í gær, og gekk alveg sæmilega. Þetta var stjörnufræðipróf, og var svolítið snúið. Síðan er stærðfræðipróf á morgun, sem er alls ekkert áhyggjuefni.
Ég fékk annars verkefnið mitt í gær. Það heitir "Thin film growth modeling" og snýst um að búa til forrit sem getur módelað hvernig þunnar filmur myndast þegar verið er að sprauta efni undir mismunandi hornum og við mismunandi aðstæður. Þetta er gamalt annars árs hópverkefni sem Prof Harding setti fyrir nemendur þegar hann var að kenna við Imperial College London. Til að byrja með verður þetta gert í tvívídd, en eftir áramót verður verkefnið líklega fært yfir í þrjár víddir.
Annars er fátt að frétta, bara meiri skóli, meiri vinna.

Thursday, 18 October 2007

Calm before the storm

Þetta hefur verið róleg vika, en alvaran byrjar samt í næstu viku. Það eru tvö próf og tvö skilaverkefni, þó ekkert til að hafa áhyggjur af.
Ég fékk líka góðar fréttir í vikunni. Fékk að vita það að þar sem ég þarf mæta í stærðfræðitímana, þá ætla þeir að láta mig vinna verkefni í staðinn. Það er ekki alveg búið að ganga frá því hvað það verður, en það verður einhvers konar stærðfræðilegt líkan af atómum í kristalgrind. Semsagt að taka öll ytri áhrif með í reikninginn. Þetta hljómar allavega mjög spennandi. Fæ væntanlega að vita meira á þriðjudag.
Síðan var ég í mjög skemmtilegum verklegum tíma í dag. Við vorum að "sand-steypa" ál (sand-casting). Set inn myndir af verkefninu mínu á morgun.

P.S. Er kominn með Skype, sigmakappa83


EDIT

Saturday, 13 October 2007

Ánægjuleg vika

Þá er enn ein helgin komin, og vikan liðin. Ég fékk ansi ánægjulegar fréttir í vikunni. Á þriðjudaginn fór ég til Dr. Mole út af stærðfræðinni. Hann lét mig hafa síðasta vorpróf og sagði mér að athuga hvernig mér gengi að leysa það. Ég skilaði því inn á miðvikudaginn og á fimmtudaginn fékk ég tölvupóst. Þar kom fram að ég fékk 114 af 125 stigum í prófinu, og að ég myndi sleppa við að sitja stærðfræðina á þessari og næstu önn. Ég þarf samt að skila inn verkefnum og taka prófin, en það er alls ekkert áhyggjuefni. Síðan ætla yfirboðarar deildarinnar að finna eitthvað sniðugt fyrir mig að gera, til þess að mér leiðist ekki. Annars hefur frekar fátt gerst, og allir verið frekar rólegir. Í gærkveldi eldaði Varun eggja karrí rétt handa okkur. Hann var rosalega góður, en ekkert sérstaklega sterkur. Síðan sátum við Varun og Manuela að drykkju með þremur herbergisfélögum mínum fram á nótt, þó var það frekar rólegt. Í kvöld verður síðan farið á "Into Fiesta" sem er svona alþjóðlegt skemmtikvöld í Octagon Centre. Stóru útlendingahóparnir koma með þjóðarrétti og drykki til að bjóða upp á. Það virðast allir úr Internationals week ætla að mæta þannig að það ætti að vera áhugavert.
Að lokum ætla ég að kvarta smá.
  • Hvar sem ókunnugir bretar koma saman mynda þeir röð. Það skiptir ekki máli hvort þeir séu að bíða eftir einhverju, þetta er bara svo sterkt í þeim.
  • Bankakerfið er hrikalega skrítið hérna. Það tekur viku að fá bankanúmerið þitt eftir að þú sækir um reikning. Það tekur aðra vikur til að fá kortið, og þriðju vikuna til að fá PIN númerið. Þetta er sérstaklega skrítið þar sem þú ert með kort sem þú getur ekki notað í viku, áður en þú færð PIN númer. Það er ekki hægt að strauja það neinsstaðar þar sem allar verslanir eru með Chip and Pin posa.
  • Þú færð kort fyrir hvern einasta reikning. Ég sótti um tvo reikninga, debitkortareikning og savings account, með það í huga að ég gæti skammtað mér peninga af einum inn á hinn. En þeir létu mig fá tvö debit kort, annað er merkt CashCard og hitt Reserve CashCard. Sóun á plasti.
  • Erlent ökuskírteini er ekki tekið gilt sem staðfesting á aldri. Það þýðir að ég er alltaf með helvítis passann á mér til þess að geta keypt áfengi.
  • Bílar gefa í þegar þeir sjá manneskju ganga yfir veginn. Þetta er satt. Sérstaklega atvinnubílstjórar. Þegar maður hleypur yfir götuna heyrir maður alltaf í bílum vera að gefa í.

Sunday, 7 October 2007

Spánverji

Þá er fyrstu námsvikunni lokið, og merkilegt nokk tókst mér að lifa hana af. Verð samt að viðurkenna að það var ansi erfitt að koma sér framúr kl 7:30 á miðvikudag og fimmtudag. Búinn að kynnast tveimur kennurum í viðbót, Dr Hyatt sem lítur út fyrir að vera um 25 ára og Prof. Matthews sem er deildarstjóri efnisverkfræði deildar. Það sem hefur komið mér mest að óvart er það hvað allir eru almennilegir. Bjóst fastlega við að kennararnir væru í hálfgerðum fílabeinsturnum, en það er alls ekki svo.
Síðasta föstudag kom kærasta Julian í heimsókn. Hún heitir Miranda og er spænsk. Hún var mjög almennileg á áhugaverð, en merkilegast var þó að persónuleikinn var nákvæmlega eins og persónuleiki Julians. Það var eins og að hafa einn persónuleika í hvoru kyni. Á föstudagskvöldið var áætlunin sú að láta Varun elda, en fékk hann slæman kvebba og treysti sér ekki til að elda. Ég tók það að mér að elda grænmetispastarétt sem var bara skrambi góður. Síðan skelltum við okkur í "afmælispartý" Rich, herbergisfélaga Julians. Frekar fámennt og ómerkilegt, en stóð þar að auki frekar stutt. Eftir það skiptist hópurinn, Miranda og Julian fóru með Rich og félögum í bæinn, meðan Varun, Manuela og ég fórum í partý sem nokkrir úr internationals week voru að halda. Sátum þar langt fram á nótt að spjalla við fólk sem við höfðum ekki séð í tvær vikur. Ég kynntist einnig nokkrum könum og slatta af öðrum. Síðan röltum við V og M heim um fjögurleitið.
Í gærkveldi fórum við út að borða og sátum fram undir miðnætti að spjalla, vantaði bara Manuelu. Vorum á amerískum veitingastað, þar sem japlað var á ekta amerískum steikum.
Þegar ég kom heim ákvað ég samt að gera eitt sem virðist svolítið skrítið. Ég fór að þvo þvott, eftir miðnætti. Þannig standa mál að það er alltaf svo löng bið eftir vélum á daginn, að ég hef frestað því svolítið að þvo þvott. En ég tók bara iPodinn og þvottinn upp í "the Edge", setti í þrjár vélar og sat þar í makindum til 3 um nóttina að þvo þvottinn minn. Núna er semsagt allt orðið hreint og fínt.

Thursday, 4 October 2007

Þá er fyrsta vikan að líða að lokum. Frekar fátt að frétta nema hvað að ég er núna búinn að hitta alla kennarana mína. Flestir tímarnir eru ágætir en stærðfræðin virðist ekkert verða erfiðari. Ég er reyndar búinn að fara í heimsókn til Dr Ojovan, sem stýrir minni gráðu innan deildarinnar, og var hann hæst ánægður með að ég væri sleipur í stærðfræðinni. Hann sagði mér að tala við Dr Niels Mole, yfirmann stærðfræði fyrir verkfræðinga, og semja við hann um hvað ég ætti að gera á önninni. Það verður semsagt næsta skrefið, og geng ég frá því í næstu viku.
Vikan hefur annars verið róleg, fór út að borða í gærkveldi með Julian og Manuela. Fórum við síðan í heimsókn til indversku mafíunnar, og síðan snemma heim. Annað kvöld ætlar Varun að elda ekta indverskan mat handa okkur. Síðan verður líklega kíkt í bæinn.
Smá svona almennt um skólann þessa vikuna. Deildin mín er til húsa í Hadfield byggingunni. Þar er safn sem heitir "The Turner Museum of Glass". Ég hef hangið þar mikið milli tíma, þar sem í safninu er kaffisala og borð. Konurnar í kaffisölunni eru farnar að þekkja mig, þar sem ég hef fengið mér kaffi þar nokkrum sinnum á dag. Það er svolítið sérstakt að sitja þarna með kaffibollann því allir prófessorarnir og kennararnir hanga þar í hléum og spjalla. Þeir eru allir mjög þægilegir og skemmtilegir og hef ég spjallað aðeins við kennarana mína þar.

Í dag hitti ég tutorinn minn, Professor Thomas Schrefl. Hann er merkilega fínn gaur. Ótrúlegt en satt þá gaf hann okkur heimasímann sinn ef ske kynni að við þyrftum að hafa samband. Þetta er sérstaklega merkilegt því prófessorar reyna yfirleitt að komast hjá því að vera tutorar, eða ef þeir neyðast þá reyna þeir að komast hjá öllum samskiptum við nemendur sína.
Smá svona side note um Prof Schrefl. Hann sérhæfir sig í að módela umpólun (já segul) í málmum, og hefur unnið fyrir öll helstu harðadisksfyrirtæki heimsins. Auk þess var hann meðlimur í Fidler hópnum í Vín áður en hann var "keyptur" af USheff.

Monday, 1 October 2007

Barnaskóli

Fór í bíó með fastahópnum í gærkvöldi. Sáum the Big Lebowski, kostaði heil 50 pens. Síðan var okkur boðið í mat til Siddarth, einum af indversku mafíunni. Það var síðasta kvöld pabba hans í Sheffield, þannig að karlinn eldaði ekta indverskan mat handa okkur. Ekkert smá sterkur, en ótrúlega góður. Áhugavert að hitta gamla karlinn, mjög fínn gaur.
Í dag byrjaði skólinn síðan. Byrjaði á "Structure and Bonding of Materials" klukkan 10. Lítur út fyrir að verða áhugaverður kúrs en kennarinn, Prof. I.M. Reaney, eyddi nánast hálftíma á að útskýra vektora og plön án þess að nefna það réttu nafni.
Klukkan 12 var síðan stærðfræði, sem var mesti brandari sem ég hef nokkurn tímann heyrt um. Kennarinn var að útskýra aðgerðir eins og að leggja saman og draga frá (ekki grín). Undir lok tímans nefndi ég við kennarann að ég væri aðeins lengra kominn í stærðfræðinni. Hún spurði hvert ég væri kominn, og nefndi ég þá stigula, margföld tegur, diffurjöfnur og línulega algebru. Vona bara að ég fái að sleppa kúrsinum, eða taka stöðupróf. Ætla að hitta tutorinn minn á morgun til að ræða þetta.
Annars er bara fátt að gerast á næstunni. Bara skóli alla vikuna og síðan kvöldverður með hópnum á föstudagskvöldið.

Sunday, 30 September 2007

Smá upplýsingar

Ákvað að setja inn tölvupóstfangið mitt og símanúmer.
GSM: 00447515113141
Tölvupóstur: mta07sk (at) shef.ac.uk

Eldamennskan og indverska mafían

Ég ætlaði að blogga í dag, en það varð því miður aldrei af því. Ég er nú að koma heim eftir langt kvöld (og reyndar nótt) og búinn að skemmta mér vel. Byrjum samt á fimmtudagskvöldinu.
Við Julian fórum í verslunarferð um daginn og keyptum hin ýmsu eldhússtól. Við ákváðum að vígja þau með smá kvöldverðarboði, og buðum því Varun og Manuela í mat heima hjá Julian. Keyptum nauta sirloin og slatta af grænmeti og ætluðum síðan að kaupa góða rauðvínsflösku. Það varð hins vegar ekki af því þar sem ég var ekki með passann minn meðferðis og fór afgreiðslumaðurinn fram á að við sýndum báðir skilríki við áfengiskaupin. Við enduðum því með að fá Varun til að sjá um veigarnar. Eldamennskan var ansi flókin þar sem pottarnir og pönnurnar voru frekar í minni kanntinum fyrir fjóra skammta, en tókst þó að lokum. Maturinn reyndist hinn ágætasti fyrir utan það að kjötið var af lægri gæðaflokki og því ansi gúmmíkennt.
Eftir matinn dróg Manuela okkur heim til vinkvenna sinna í Opal 2 húsaþyrpingunni. (Við höfðum fengið kynnast þeim stelpum á þriðjudaginn síðasta). Satt best að segja þá náðu hóparnir engan veginn saman þar sem þær voru að REYNA að vera svona fágaðar og fínar en við aðeins að skemmta okkur og djóka. Því fór að lokum svo að ég, Varun og Julian stungum af um miðnættið og fórum heim að sofa.
Í kvöld héldu ég, Varun og Julian Die Hard maraþon þar sem við horfðum á þrjár myndir í röð. Við pöntuðum okkur pizzur og drukkum bjór og gos fram undir miðnætti. Tveir indverjar bættust í hópinn fyrir síðustu myndina, Siddartha og Adidthia (alls ekki viss hvort ég skrifi nöfnin rétt). Þegar við ætluðum að halda heim á leið hittum við hóp af indverjum sem voru á leið á djammið. Þeir buðu okkur að slást með í hópinn, og endaði það svo að ég var einn með sannkallaðri indverskri mafíu það sem eftir var nætur. Verð að segja að það er ansi áhugavert að upplifa kvöld sem minnihlutahópur, sérstaklega þar sem þeir skiptu reglulega (og að þeirra sögn óvart) yfir í að tala hindi sín á milli.
Allavega við ætluðum að kíkja á stað sem heitir Nylon, en þegar þangað var komið var ömurleg tónlist í gangi og héldum við því heim til eins þeirra til að halda djamminu áfram. Þar spiluðum við texas hold-em fram á nótt og skemmtum okkur konunglega. Við Varun vorum fyrstir til að tapa öllum spilapeningunum okkar og fórum við því heim um fjögurleitið, en hinir héldu áfram að spila. Vara við að myndin hér að neðan kom ansi illa út, en þetta er semsagt meiri hlutinn af indversku mafíunni.

Thursday, 27 September 2007

Veikur :-(

Var á djamminu á þriðjudagskvöldið, heldurðu ekki að ég vakni ekki bara fárveikur á miðvikudagsmorguninn. Mjög leiðó. Það þýddi að ég missti af deildarkynningunni á miðvikudeginum, sem var ekki nógu gott. Svaf síðan af mér miðvikudag og fór ekki framúr fyrr en á fimmtudagsmorgni. Ekki alveg það sem maður óskar sér á freshers week. Hins vegar er ég allur að batna núna, ennþá hóstandi en samt ekki jafn mikið og áður. Ætla mér síðan að taka því rólega í dag og reyna að koma mér eitthvað út á morgun. Við sjáum hvernig það fer.

Monday, 24 September 2007

Birchen!!!

Þá er maður fluttur á hina raunverulegu vist, Birchen. Flutti hingað með hjálp Johns á laugardaginn. Komst þá að því að íbúðin er algjört international ghetto. Hér eru tveir kanar, sem ég nefndi áður, Kanadabúi (sem er alltaf á náttfötum og mig grunar að hann hafi ekki farið út fyrir hússins dyr síðan hann flutti inn) og einn gaur frá litháen. Áhugavert að þegar litháinn komst að því að ég væri íslendingur nefndi hann strax að við hefðum verið fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði þeirra. Greinilega "big deal" hjá þeim.
Á laugardagskvöldið ætluðum við nokkur á pub crawl. Það tókst ekki betur en svo að á fyrsta staðnum, the West End, var sífellt að bætast nýjir við hópinn. Það þýddi að við vorum þar í þrjá tíma. Þá stungum við Julian, Manuela og Varun niður í bæ á the Frog and Parrot. Tónlistin var svo hávær þar að við entumst bara í einn drykk. Eftir það ætluðum við að fara á The Devonshire Cat en þeir voru að loka, líkt og allir alvöru pöbbar þannig að við fórum bara heim.
Á sunnudaginn hittumst við Julian og Varun á the West End til þess að horfa á rugby. Julian tók að sér að útskýra reglurnar. The All Blacks rústuðu skoska liðinu með miklum mun. Varun ætlar síðan að kenna okkur reglurnar í cricket við tækifæri. Ætli ég þurfi þá ekki að kenna þeim handbolta, eða eitthvað svoleiðis, við tækifæri.
Í dag fórum við síðan á fundi í deildunum okkar. Fyrst hittist öll deildin, semsagt biomaterials-, biomedical-, materials-, polymer engineering og metallurgy í Turner safninu í okkar byggingu. Eftir að hafa þegið kaffibolla var okkur skipt upp í okkar fög og létu þeir mína deild hlaupa upp 10 hæðir til þess að spjalla um valið. Ég hélt að ég myndi lognast útaf eftir það. Jæja við fórum síðan gegnum fögin sem allir þurfa að taka og síðan var verið að ákveða hvað þyrfti að velja. Þá kemur prófessorinn til mín og ég spyr hann hvort sé mælt með einhverju ákveðnu valfagi fyrir mig(sumir þurftu að taka ákveðin valfög). Þá segir hann við mig að þeir hafi sett spurningarmerki við mitt nafn varðandi "balancing chemistry" og "balancing physics" (tossafögin). Ég sagðist nú ekki halda að ég þyrfti að taka það, enda búinn að vera að hjálpa öðrum síðasta árið við þau fög auk stærðfræðina. Hann var sáttur við það svar, sem betur fer. En þá var komið að því hvað skildi velja. Eina sem var "frátekið" fyrir mína deild var medical and dental materials eða tungumál. Mér leist nú á hvorugt og spurðist ég því fyrir hvort ég gæti ekki skráð mig í auka eðlisfræði eða stærðfræði. Mér býðst það sem betur fer en ég þarf að bíða þar til á morgun til að kynna mér þau valfög. Því næ ég ekki að "verða nemandi", semsagt að skrá mig, fyrr en á morgun.
Framundan er semsagt skráning á morgun og síðan verður annar deildarfundur á miðvikudaginn. Þá fæ ég semsagt að kynnast mínum "tutor" og við veljum þá vinnufélaga fyrir verklega tíma. Annars er það bara að hanga með félögunum á kaffihúsum og pöbbum og njóta lífsins.

P.S. Anna og mamma hafa alltaf verið svolítið skrítnar, þannig að það kemur ekkert á óvart að skriftin þeirra skiljist ekki. Annars á ég við sömu vandamál að stríða, en enga hugmynd hver lausnin sé.

P.P.S. Set inn myndir af herberginu og íbúðinni þegar ég hef tekið almennilega til.

Friday, 21 September 2007

Núna er föstudagur og ég ætti að vera að flytja inn í íbúðina mína. Því miður verður ekki af því í dag þar sem þær eru "ekki tilbúnar". Þeir gera samt ráð fyrir að við getum flutt inn á morgun svo ég er sæmilega sáttur. Ég ætla að flytja til Jóns á eftir og gista þar í nótt. Herbergisins hér á Ranmoor House verður sko ekki saknað. Eins og myndirnar gefa til kynna eru þau ekki upp á marga fiska.









Í kvöld er síðan dinnerinn með öllu fína fólkinu úr háskólanum og borginni. Mér skilst meira að segja að borgarstýran verði viðstödd.
Þetta er nóg í bili. Blogga næst þegar ég er kominn í íbúðina í Birchen

Wednesday, 19 September 2007

Vá hvað maður er nú duglegur. Ný bloggfærsla strax!!!
International Orientation heldur áfram en sem betur fer þekki ég borgina nógu vel til að sleppa sumu af þessu "krappi" sem er í boði. Ég er samt kominn í góðra vina hóp og erum við yfirleitt að hanga saman. Ég skal fara yfir félagana núna, en er samt ekki kominn með myndir af öllum.
Við byrjum á honum Julian. Hann er þjóðverji eins og nafnið gefur til kynna en býr í Schaffhausen í Sviss. Hann er af vel efnuðu fólki og lifir verulega góðu lífi. Pabbi hans á eitthvað fyrirtæki í Sviss. Hann hefur búið síðustu sex ár í heimavist í Þýskalandi. Við virðumst ná ansi vel saman og höfum haldið liðið ansi mikið bæði á garðinum og í bænum. Julian er að læra Medical Systems engineering
Síðan er komið að honum Varun. Mjög fínn indverji sem hefur hangið með okkur á pöbbunum. Hann er frá "þurru fylki" á Indlandi og ætlar því að nýta háskólaárin í að skemmta sér konunglega. Ég held að hann sé að taka vélaverkfræði.

Næst er síðan Manuela Lohs frá Þýskalandi. Mjög fín stelpa en virðist svolítið lokuð. Hún reynir alltaf að bæla niður hláturinn þegar við erum að skemmta okkur, en það gengur vel að redda því.
Síðan er það Raj frá indlandi. Hann er algjört barn í sér en samt skemmtilegur. Hann fór í sitt fyrsta partý í gærkvöldi (með okkur öllum). Við ætluðum að fá hann til að drekka duglega en því miður gafst hann upp á því eftir tvo bjóra.
Ég nenni ekki að skrifa meira, þ.a.
Reza frá Íran og Ahmed frá Saudi Arabíu

Tuesday, 18 September 2007

Fyrsta bloggfærslan

Jæja, núna er ég búinn að vera í Sheffield í nokkra daga. Reyndar aðeins þrjá á garði. Ég er að taka þátt í International Orientation, þannig að við erum öll sett saman í Ranmoor House. Það er gamall og ömurlegur garður sem á að rífa um áramótin. Ég er búinn að kynnast helling af nýju fólki, en hef mest hangið með þýskurunum. Það er fjandi mikið af þjóðverjum að læra hérna, þótt Asíubúarnir séu mannmestir.
Sá sem ég hef kynnst mest af öllum heitir Julian Fritz og er Þjóðverji/Svisslendingur. Sérstakur en mjög fínn gaur. Set inn mynd af honum síðar.
Það hefur allt gengið að óskum hingað til, nema hvað að ég komst að því rétt áðan að ég verð í herbergi með tveimur helv**** könum. Annar lítur út eins og 15 ára mömmustrákur og hinn eins og versti hasshaus. Geri ekki ráð fyrir að ég hangi mikið með þeim í framtíðinni.
Framundan er heilmikið djamm í kvöld og fram undir morgun. Síðan er morgundagurinn frekar opinn. Á föstudaginn flytjum við síðan af þessum garði og á þá sem við verðum á það sem eftir er árs. Það kvöld er síðan "black tie" dinner með öllum stórlöxunum í skólanum.
Læt heyra meira í mér síðar í vikunni