Wednesday, 30 April 2008

PhD pælingar

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér upp á síðkastið og sé ég fram á að þannig verði það áfram. Eins og ég hafði nefnt áður þá hafði ég átt orð með Dr. Palmiere varðandi simulation sem hann hafði sýnt í tíma. Hann hafði ætlað að senda mér upplýsingar, en hafði ekki látið verða af því. Ég greip hann því á mánudaginn eftir tíma og fylgdi honum á skrifstofuna hans. Hann lét mig fá slatta af gögnum up þessa tegund af simulation. Við spjölluðum líka um hitt og þetta, ss hvaðan ég kæmi og hvað ég ætlaði mér. Þar kom í ljós að ég þyrfti ekki að vera kominn með master áður en ég færi í PhD rannsóknir. Hann sagði að ég myndi aðeins þurfa BEng með meðaleinkunn yfir 60%. Það hljómar ansi freistandi, en ég hef núna ár til að ákveða hvað ég ætla mér að gera.
Annars er maður bara krepera út af þessu verkefnaflóði. Ég þarf náttúrulega að gera meira en flestir af því ég er einnig með verkefnisskýrsluna. Annars sér maður bara fram á próflestur og verkefnavinnu næstu vikur.

Sunday, 27 April 2008

Verkefnaflóð

Jæja... ég fundaði með Prof. Harding á miðvikudag og ákváðum við að ég ætti að drífa mig núna að skrifa skýrslu um 2D hlutann. Auk þess fékk ég að keyra kóðann minn á litla deildar-clusternum, þ.e. 72 tölvur með AMD dual core Opteron örgjörvum. Þegar nær dregur prófum, eða jafnvel eftir próf, get ég keyrt 3d hlutann af verkefninu á clusternum, en þar sem það mun taka lengri tíma þarf ég að einfalda kóðann alvarlega.
Svona til þess að útskýra hversu marga útreikninga þarf að framkvæma settist ég niður með reiknivélina mína. Því miður var hún ekki nærri því nógu öflug til að reikna það út þannig að ég setti tölurnar inn í Mathematica og fékk út fjölda útreikninga í einni keyrslu. Ein keyrsla er 10000 tímaskref og á hverju tímaskrefi eru kraftar milli allra atóma reiknaðir tvisvar. Það sem mathematica gaf mér semsagt var:
131859537889366691821423625514935758269426899542573
193011014417599850974231681049114195914115835202238
036705447724697376139750030552505771632922773822768
414517368225448024444767906232025040880815479726521
477409877171091104157157185050947098045006503961053
980200881709837465653878319494261753336312446474835
221452248553677974400818929315504130412447077035924
252472130007076438618284215973845286866389853179167
985550696034590084780554719437972204553089906550018
088245452667293535225573976115505908135476538810987
863970577322091833053266187353726583587174531083653
590012413072260973733797748804872372931062002007642
692558543372905224694212893680289719163090470810975
244696371332056040106336881346854536819542433114841
387509620326135550762822497885395254224295238894062
963988155175245670949334261907191274282037432443822
184968974298461009991660066959056746528035614373955
160682987432362169469493181517466346158102987296118
508543957848997984952184124987419046172133185696551
140376012788782239174304580484305540459166841206328
196399943426058273716977708864511019672918469443386
342425287324888284992436007745428726394306115606154
363145133241422658207206671712177432542407387539767
677967607575604045072266046343103883930698238930132
806682651901916735622877402331811672330267498585112
389725252913746977093949606675060609683458944470982
137719012248711125270093564674476974098408430269043
536020340439420821544853548488511777805591572178555
251983408494600131857874944000000000000000000000000
000000000000000000000000000000000000000000000000000
000000000000000000000000000000000000000000000000000
0000000000000000000000000000000000000027040000


útreikningar á keyrslu.
Athugið að þetta eru ekki allt einfaldir útreikningar. Þarna inni eru úreikningar með 12 og 6 veldis tölum.
Þetta er semsagt ansi mikið af útreikningum. Þegar farið væri síðan í þrjár víddir myndu útreikningarnir aukast til muna.
Eins og er tekur það tölvuna mína um 3 klst að framkvæma þessa útreikninga, auk þess að koma frá sér gögnunum. Í clusternum tók meðal keyrsla um 12 mínútur, sem er ansi mikið hraðar.
Framundan eru síðan bara heilmörg verkefni og síðan skýrslan um þetta verkefni.

Tuesday, 22 April 2008

Tölvuóskir

Ég er búinn að vera svolítið slappur síðustu daga, og hef því lítið farið út fyrir hússins dyr. Ég hef þó náð að vinna ansi mikið, bæði í verkefninu og í venjulegri skólavinnu. Það versta er þó að þar sem ég hef mikið gert í verkefninu er tölvan mín ansi mikið upptekin. Hver keyrsla tekur 2-3 klst og notar svo mikið minni og örgjörvaafl að ég get ekkert unnið á meðan. Maður er farinn að sakna þess ansi mikið að hafa tvær tölvur, eins og ég hafði heima. Fer á fund með Dr. Harding á morgun og er að vona að ég fái að sitja í tölvuclusternum í skólanum um helgina. Þá get ég verið að vinna á fartölvunni á sama tíma og ég keyri módelin á clusternum. Clusterinn er líka ansi mikið öflugri þannig að módelin ættu að keyra miklu hraðar.
Annars er asnsi mikið að gera almennt í skólanum, með 6 verkefnaskil á næstu 2 vikum. Það eru síðan aðeins 4 vikur í próf og er smá stress farið að sýna sig í skólanum. Annars er fátt að frétta. Blogga meira síðar í vikunni.

Saturday, 12 April 2008

Hitt afmælið

Úfff.... ég er að jafna mig eftir tvöfalt afmælisparty í gær. Matt átti afmæli í dag, og ég náttúrulega um síðustu helgi, og héldum við risa party til að halda upp á það. Matt er greinilega mikið afmælisbarn... þar sem drengurinn bakaði kökur og fjárfesti í tveimur borðum til að geta spilað beer pong. Annars var bara djammað fram eftir nóttu og mættu um 30-40 manns. Nokkrir úr deildinni minni gáfu mér síðan afmælisgjöf, beer brewing kit, sem inniheldur allt sem þarf til að búa til bjór, nema kannski baðker. Þetta var mjög gaman.

Annars er fyrstu viku eftir páska lokið. Skilaði af mér tveimur verkefnum og fór á fundi með tveimur kennurum. Síðasta mánudag greip ég Dr Palmiere eftir tíma til að spyrjast fyrir um "grain growth" módel sem hann hafði sýnt nokkru áður. Var bara ekki að átta mig alveg á því hvernig þetta virkaði og vildi vita meira. Maðurinn leit á mig eins og ég væri geðveikur að spyrja um eitthvað svona, en samþykkti loks að senda mér gögn um þetta. Síðan var fundur með Prof. Harding. Hann var mjög ánægður með það sem ég hafði gert. Síðan sýndi hann mér eitt af því sem hann var að vinna í. Þetta voru rannsóknir á ákveðnu próteini sem á þátt í myndun skurnar á eggjum. Þetta var brjálæðislega flókið prótein og er módelið svo flókið að í sumar þegar verkefninu er lokið mun það hafa tekið um 20% af tölvuvinnslutíma í UK-Universities-Supercomputer fyrir heilt ár.

Ég á stundum til að fá "æði" fyrir ákveðnum efnum og lesa allt sem ég finn um þau. Í síðustu viku byrjaði gengja-æði. Ég fann tvær heimildarmynda-seríur um gengi og varð algjörlega sjokkeraður. Eitt af því sem hafði þessi áhrif á mig var aldur margra sem voru í þessum gengjum og hvað þetta fólk var alveg sátt við að deyja eða enda í fangelsi. Jafnvel ungt fólk úr ágætlega vel stæðum fjölskyldum talaði um alvarlega glæpi sem það framdi eins og ekkert væri sjálfsagðara. Maður trúði varla hversu blint þetta fólk var. Það merkilegasta var þó að nánast allir lögreglumennirnir sem talað var við sögðu að þegar þeir fóru að spyrja meðlimi gengjanna af hverju þeir væru í gengjunum eða hvað þeir ættu sameiginlegt með gengjunum gátu þeir ekki svarað. Merkilegt hvað það er auðvelt að vera svona blindur fyrir sannleikanum.

Monday, 7 April 2008

Afmæli

Ég átti nú afmæli í gær. Orðinn kvartöld núna og ætla að fara að panta á elliheimili. En ég vil byrja á að þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar og símtölin. Ég kunni vel að meta það.
Á laugardagskvöldið hélt ég smá matarboð þar sem ég bauð upp á íslenska matseld. Hangikjötið lagðist vel í fólk en við vorum aðeins þrír sem kunnum að meta graflaxinn. Annars var svo drukkið fram á nótt, og skálað í Veuve Clicquot kampavín á miðnætti.
Veðrið hefur síðan verið ansi skrítið hér síðustu viku. Á miðvikudag varð rosalega hlýtt og gat ég verið í stuttbuxum á nóttunni. En á laugardag og sunnudag fór að snjóa.
Annars er frekar fátt í fréttum. Skólinn byrjaði aftur í dag, og það verður nóg að gera á næstunni.

Tuesday, 1 April 2008

Aleinn

Jæja, þá eru mæðgurnar farnar, og ég aleinn og yfirgefinn. Það var rosalega gaman að fá þær, og var John mjög góður að keyra út um allt með okkur. Fékk einnig afmælisgjafir á meðan dömurnar voru í heimsókn, golfkylfur, skór, hanskar og kúlur auk þess sem amma færði mér innrammað kort af Skandinavíu. Nú tekur við lærdómur í viku áður en skólinn kemst aftur á skrið. Á laugardaginn verður síðan matarboð að miklu leiti í boði múttu og ömmu. Þar mun ég bjóða upp á hangikjöt, graflax og reyktan silung, auk veglegra veiga.
Á sunnudaginn var fór ég síðan og vígði nýja golfdótið. Fór til Moor View Golf Centre og sló þar 360 kúlum á æfingasvæðinu. Gekk ekki svo rosalega illa, miðað við hvað það er langt síðan ég tók í kylfu. Trén neituðu að fljúga beint og langt, voru eitthvað hægri-sinnuð þennan daginn. Aðrar kylfur reyndust betur og var gekk mjög vel með wedge-in. Ég stefni á að reyna að finna kennara á næstu viku og fá aðstoð við að leiðrétta sveifluna. Það má geta þess að innan marka Sheffield er ansi margir golf vellir: Hallamshire, Hillsborough, Beauchief, Abbeydale, Concord, Birley Wood, Dore & Totley, Lees Hall, Tinsley Park auk vallanna í Rotherham og Doncaster. Ætla að reyna að vera tilbúinn að spila fyrir sumarið, og reyna að spila eitthvað heima. Þegar ég kem aftur hingað í haust ætla ég að ganga í klúbb reyna að spila mikið næsta vetur.
Annars er fátt að frétta. Læt heyra í mér undir lok viku.

P.S. Reglubreytingar í F1 eru gerðar til að ekki sé of mikill munur milli liðanna hvað tæknina varðar. Auk þess er verið að leggja áherslu á færni ökumanna.