Friday, 23 November 2007

Afmæli

Þá er önnur vika að líða, og ég sit í leiðinlegast tíma vikunnar. Áfanginn heitir Microstructure and Mechanical properties of materials, og er kenndur af Prof. Matthews (deildarstjóri Engineering Materials). Fyrir utan það að við sitjum áfangann með Aerospace fólkinu, sem þýðir að við erum 100-150, þá er yfirferðin hans svo asnaleg að maður lærir ekkert af því. Hann er maður sem á að halda sig við rannsóknir, og hætta að kenna.
Síðasta miðvikudag átti Julian afmæli. Hann er nú orðinn tvítugur, og við héldum upp á það með glæsibrag. Við gáfum honum þ.a.a. afmælisgjöf, Löwepro Slingshot myndavélatösku. Hann var hæstánægður með hana. Síðan gaf móðir kærustunnar hans honum svítu í London handa þeim yfir þessa helgi. Þar sem þau hittast aðeins á nokkurra mánaða fresti þá verður gaman hjá þeim um helgina. Annars er frekar fátt framundan, bara vinnuhelgi og meiri vinna í næstu viku,

Monday, 19 November 2007

Gaman

Voðalega er gaman þegar svona margir kvitta á síðuna!!! Sömuleiðis gaman að heyra frá öðrum Englandsfara. Btw. Kiddi, manstu eftir Ellen/Ellen, manstu eftir Kidda.
Fór, eins og í hverri viku, til Dr. Harding á föstudaginn. Hann hefur umsjón yfir verkefninu mínu, þannig að ég hitti hann vikulega og fer yfir það sem ég hef gert. Ég er búinn að skrifa kóðann fyrir helminginn af verkefninu mínu, og ætti að klára restina í næstu viku. Ég sýndi honum keyrslu á forritinu fyrir "Random deposition" og "ballistic deposition" og sagði hann að hann væri hæstánægður með frammistöðu mína. Síðan nefndi hann að ég ætti að íhuga hvað ég myndi vilja gera eftir áramót, byggja ofan á þetta verkefni eða fara í eitthvað nýtt. Ég sagðist vera til í hvort sem er, en myndi alls ekki afþakka að læra eitthvað nýtt. Hann kom með nokkrar tillögur, en nefndi síðan að það væri reyndar farið nánar í þetta efni á 3 og 4 ári. Múhahaha!!!
Síðan var helgin bara frekar róleg, bara horft á DVD og spilað Wii á kvöldin. Lærði þó yfir daginn. Framundan er algjör verkefnamartröð. Það eru 5 vikur eftir af önninni, og á þeim tíma eru 6 skilaverkefni, 2 próf, 1 ritgerð og náttúrulega skýrsla úr verkefninu mínu. En maður huggar sig bara við það að maður hefur haft það ansi gott hingað til. Þar að auki fer tímunum fækkandi þegar nær dregur jólafríið, þar sem flestir kennararnir ætla sér að klára efnið snemma.

Wednesday, 14 November 2007

Bloggfrí

Það er þónokkuð síðan ég bloggaði síðast, en það hefur þónokkuð gerst síðan þá. Í síðustu viku var skills week. Við hlustuðum á fyrirlestra frá IOM3 og fleirum varðandi okkar fag. Síðan kynntist ég nokkrum eldri nemendum sem höfðu farið í "placement" á síðasta ári. Ansi áhugaverðir guttar. Síðan fórum við í heimsóknir til Corus í Scunthorpe, Guardian Industries í Goole og JRI hér í Sheffield. Það var ansi áhugavert að þeir voru að reyna að "selja" okkur fyrirtækin á fyrsta árinu okkar. Það var verið að tala um möguleg tækifæri hjá fyrirtækjunum og meðallaun. Síðan unnum við hópverkefni, sem ég reyndar gerði nánast einn þar sem hinir stóðu sig ekki í stykkinu. Við enduðum í 3 sæti af 6, sem var ekki svo slæmt því hluti af einkunninni var að allir leggðu eitthvað fram. Síðan kom Palli í heimsókn yfir helgina. Það var haldið smá teiti heima hjá mér á föstudagskvöldinu, og var nóg um drykkju og sora. (Hvað sem Palli segir, þá spillti ég honum ekki, hann gerði það sjálfur). Síðan fórum við á Varsity á laugardagskvöldið og héldum okkar striki áfram. Á sunnudeginum fórum við síðan með John í bíltúr um Derbyshire, til að taka eitthvað af myndum. Þá fékk Palli loksins að sjá að það er meira en bara næturlíf í Sheffield, einnig fögur náttúruverndarsvæði. Síðan sendum við hann til London á Sunnudagskvöldinu. Annars var bara helgin góð, að mínu mati.
Á mánudeginum fór ég síðan og keypti sjónvarp fyrir íbúðina. 37" Samsung frá John Lewis varð fyrir valinu, og kostaði það 649 pund. Það var síðan ansi skondið að þegar ég kíkti á heimasíðu John Lewis í gær var búið að hækka verðið um 100 pund!!!
Annars er fátt planað á næstunni, líklegast bara DVD kvöld um helgina.

Friday, 2 November 2007

This one goes out to all the musical mathematicians out there!!!