Wednesday, 6 May 2009

Guess what - I'm still alive

Verð að biðjast velvirðingar á bloggleysinu, en vonandi fer ég að bæta eitthvað úr því. Hmm... hvað er í gangi hjá mér. Það er skilatörn í gangi í skólanum, skilaði fimm verkefnum í síðustu viku, og eru fimm í viðbót á önninni. Þar að auki skilum við af okkur rakvélaverkefninu þarnæsta mánudag. Það verður kynning á rakvélunum sem allir voru með. Hópurinn okkar er búinn að vera lang-duglegastur og hefur á lítilli sem engri hjálp þurft að halda. Það er þrátt fyrir að tveir, af fimm, í hópnum hafa nánast ekkert gert. Við höfum allavega kvartað til verkefnisstjórans og fáum að meta framlag hvorra annarra. Á morgun ætlar hópurinn síðan að hittast og ganga frá lausu endunum í verkefninu.
Í morgun kom mér ansi mikið á óvart að sjá ref á leiðinni í skólann. Náði meira að segja að smella mynd af kauða.

Þetta er sérstaklega óvenjulegt þar sem ég bý í miðbænum, örugglega meira en kílómetra frá næsta almennilega gróna svæði.
Ég fór síðan á seminar um eftirmiðdaginn. Það var gaur frá Oxford að ræða um "multiscale modelling" og köngullóar silki. Hann er semsagt búinn að þróa frekar einfalda leið til að meta macro skópíska eiginleika frumefna og einfaldra fjölliða út frá nano-skópískum módelum. Þetta er ekki sérstaklega merkilegt nema hvað að hann er að gera þetta á nokkrum klukkustundum á venjulegri tölvu, frekar en á tölvu-cluster. Það sem var þó áhugaverðast var rannsóknir hans á silkinu. Hann er semsagt að reyna að sýna fram á hvernig köngullær búa til mismunandi silkiþræði með mismunandi eiginleikum. Silkiþræðirnir geta nefnilega haft Youngs modulus á bilinu 5-10kPa upp í 20GPa.
Annars er ekkert annað að segja.
Hafið það gott... og vonandi er einhver ennþá að tékka á blogginu.

Sunday, 19 October 2008

Bland í bloggi


Graphite og graphene



Jæja... það hefur ýmislegt áhugavert átt sér stað síðustu vikuna. Ég fór á áhugaverðan fyrirlestur síðasta miðvikudag. Fyrirlesturinn fjallaði um eitt ódýrasta og dýrasta efnið í heiminum. Efnið er kolefni, eða frekar efni búið til úr kolefni sem heitir graphene. Um er að ræða stök lög af grafíti (eins og finnst í blýanti). Undirfyrirtæki University of Manchester er að selja slík stök lög af grafíti á 2 pund fyrir hvern fermíkrómetra. Ef maður reiknar út kílóverðið þá er það um 10^16 pund. Sem þýðir að Bandaríkin gætu keypt eitt gramm á ári ef þeir fórnuðu allri þjóðarveltunni. Ástæðan fyrir verðinu er einfaldlega þar sem þeir hafa ekki getað fundið neina leið til að framleiða graphene á stórum skala. Þeir eru semsagt núna að nota þunn lög af grafíti sem taka í sundur, aftur og aftur, þar til þeir ættu að vera komnir með eitthvað graphene. En það tapast meiri hlutinn af efninu þar sem lögin vilja helst ekki losna í sundur. Þeir hafa þó gert ýmislegt áhugavert með þetta efni, s.s. að búa til rafrásir á örsmáum skala.
Í gær fór var mér síðan boðið í hádegismat, ásamt John, til Baron Dr. David Harvie Kirkwood. Nei, hann er ekki einhver ofur-uppi. Hann er fyrrum prófessor í deildinni minni, og nágranni Johns. Við sátum að spjalli í fjórar klukkustundir, og var þá mikið talað um stöðu Íslands. Sem betur fer voru þau tóku fréttaflutning síðustu vikna með takmarkaðri alvöru, og voru almennt jákvæð í garð íslendinga. Við ræddum aðeins um mín plön varðandi frekara nám. John sagði að David hefði brugðist vel við að ég skildi vera nú þegar farinn að hugsa til doktorsnáms. Sjálfur fannst mér hann ekki bregðast neitt sérstaklega við. En þau buðu mér að líta við aftur við tækifæri fyrir frekara spjall. Ég lít á þetta allt sem frekara framapot að minni hálfu, þar sem David er ennþá í samskiptum við marga menn innan minnar deildar. Ég vonast því til að þetta muni verða til þess að fleiri prófessorar í deildinni minni taki eftir mér. Eins og staðan er í dag er alltaf gott að vera með góð sambönd innan síns fags.

Thursday, 9 October 2008

Heimur versnandi fer!!!

Það hefur verið ansi áhugavert að hlusta á íslenska og breska fjölmiðla er efnahagur okkar hrinur. Þegar ég skrifa þetta þá hefur Kaupþing, síðasti íslenski bankinn, einnig hrunið. Var einmitt að heyra í Ingó B., frænda, í viðtali við BBC Worldservice um Kaupþing. En ég nenni ekki að fara nánar út í fjárhagslega heilsu Íslands.

Vikurnar hafa liðið hratt hérna úti. Var veikur meiri hluta síðustu viku með einhverja leiðindaflensu. Ég hef þó að mestu leiti jafnað mig á henni, þótt ég sé enn hóstandi. Skólinn virðist mun áhugaverðari en á síðasta ári. Það er mun hnitmiðaðra námsefni í ár, þá sérstaklega varðandi framleiðsluaðferðir. Síðan eru verklegu tímarnir mun áhugaverðari. Á þriðjudaginn fengum við að leika okkur með SEM (rafeindasmásjá). Okkur var kennt að stilla smásjána og fókusa á mismunandi hluti. Síðan eigum við að mæta í næstu viku með einhverjar tillögur að hlutum til að taka myndir af með smásjánni og vinnum síðan verkefni út frá því sem fyrir valinu verður. Eftir það fáum við kynningu á TEM (Tunneling electron microscope). Við fáum þó ekki að vinna verkefni með þeirri smásjá. Hins vegar snúum við okkur að "reverse engineering" á ýmsum daglegum hlutum, þar sem farið verður í almennar framleiðsluaðferðir og göllum þeirra. Annars er frekar fátt að frétta. Læt heyra í mér seinna.

P.S. Ég er kominn með netsíma og númerið er 4991001.

Tuesday, 23 September 2008

Sheffield WOOHOOOOOOOO!!!!

Jæja.... þá er maður kominn aftur til Sheffield. Lenti í langri röð í passaskoðuninni, en slapp samt ágætlega vel gegnum allt kerfið. Sem betur fer beið John eftir mér hinu megin (hefði annars þurft að bíða í tvo tíma eftir lest). Ég gisti síðan hjá honum fyrstu nóttina. Um tvö leitið flutti ég síðan inn í nýju íbúðina. Hún er helvíti flott, og þá sérstaklega herbergið mitt. Það er ekkert smá flott, á sama skala og herbergið mitt á Látraströndinni. Síðan er baðherbergið svo stórt að hægt væri að setja inn tvíbreitt rúm. Ætli það verði ekki gestaherbergið mitt :-D. Annars er fátt annað að frétta. Set inn nokkrar myndir af herberginu að lokum. Læt síðan heyra í mér þegar ég hef komið mér almennilega fyrir.



Tuesday, 3 June 2008

Long time, no see!!!

Loksins dröslast ég til að skrifa eitthvað. Það er búið að vera brjálað að gera í skólanum fram að prófum, og núna eru prófin sjálf byrjuð. Fór í fyrsta prófið mitt í gær, og gekk bara vel. Þetta var próf í Electrical and Magnetic Properties of Materials. Fer síðan í próf í Thermodynamics and Kinetics á fimmtudag og Introduction to Advanced Materials Processing á föstudag. Síðan er ég með upprifjun í stærðfræði um næstu helgi fyrir þá sem hafa ekkert lært í vetur. Að lokum eru síðan síðustu prófin á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku, stærðfræði og Microstructure and Mechanical Properties of Materials. Þannig að það er ekki of langt í próflok.
Við ætlum síðan öll saman í deildinni út að borða eftir síðasta prófið, og höldum almennilega upp á þetta. Julian er officially hættur í skólanum, ekki búinn að mæta í nein próf, og ætlar að flytja til Madrid á næsta ári. Ætlar að vera hjá kærustunni og læra spænsku á meðan hann ákveður hvað taki næst við. Manuela er búin í prófum og fór heim í gær. Raj er í sömu stöðu og ég, að drukkna í próflestri.
Eftir prófin er það bara að pakka saman, skreppa til Manchester til eins félaga míns um 18. og fljúga heim 20.
Vonandi sakna mín allir mjög mikið!!! ;-D

Wednesday, 7 May 2008

Góðar og slæmar fréttir

Byrjum á þeim góðu... fór á fund með Prof. Harding í dag varðandi verkefnið. Var í vandræðum með að reikna hitaleiðni. Eftir að ha nn kom með nokkrar mögulegar lausnir á vandamálinu stakk ég upp á því að hitabreyting, og þarmeð hitaleiðni, myndi fylgja vísisfalli þegar hitinn er að jafnast út í filmu með greinilegan hitastigul (temperature gradient). Hins vegar sagði Harding að honum hefði aldrei dottið þetta í hug, og hafði aldrei heyrt um þetta í tengslum við svona módel. Hann sagði að þetta ætti að virka, eðlisfræðilega, og vildi endilega að ég prófaði þetta.
Síðan eru tvennar slæmar fréttir. Í fyrsta lagi, síðasta föstudag hitti ég hinn íslendinginn í UShef. Ég var bara á göngu eftir Glossop Road á leiðinni í skólann, og allt í einu fer einhver að tala íslensku við mig. Þetta er kona sem er að taka, ég held master, í public relations. Þetta skiptir ekki svo miklu máli, nema hvað að þegar ég var að rannsaka háskóla útilokaði ég umsvifalaust alla skóla þar sem ég vissi að íslendingar væru í námi. Ég vildi ekki enda á því að hanga bara með íslendingum.
Seinni slæmu fréttirnar eru að Julian er að spá í að hætta í skólanum. Honum finnst fagið sitt svo leiðinlegt, og langar til að fara til Munchen í tölvuleikja-nám. Þótt það gæti örugglega verið eitthvað sem hentaði honum vel, held ég að hann sé ekki alveg að skilja að fyrsta árið er yfirleitt það leiðinlegasta sama hvaða námi maður er í. Þetta myndi þýða að ég missti einn af bestu vinum mínum hérna og framtíðar herbergisfélaga. Ég vona bara að hann verði ánægður með hvað sem hann gerir.

Wednesday, 30 April 2008

PhD pælingar

Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér upp á síðkastið og sé ég fram á að þannig verði það áfram. Eins og ég hafði nefnt áður þá hafði ég átt orð með Dr. Palmiere varðandi simulation sem hann hafði sýnt í tíma. Hann hafði ætlað að senda mér upplýsingar, en hafði ekki látið verða af því. Ég greip hann því á mánudaginn eftir tíma og fylgdi honum á skrifstofuna hans. Hann lét mig fá slatta af gögnum up þessa tegund af simulation. Við spjölluðum líka um hitt og þetta, ss hvaðan ég kæmi og hvað ég ætlaði mér. Þar kom í ljós að ég þyrfti ekki að vera kominn með master áður en ég færi í PhD rannsóknir. Hann sagði að ég myndi aðeins þurfa BEng með meðaleinkunn yfir 60%. Það hljómar ansi freistandi, en ég hef núna ár til að ákveða hvað ég ætla mér að gera.
Annars er maður bara krepera út af þessu verkefnaflóði. Ég þarf náttúrulega að gera meira en flestir af því ég er einnig með verkefnisskýrsluna. Annars sér maður bara fram á próflestur og verkefnavinnu næstu vikur.