Sunday, 16 March 2008

F1

Eins og aðrir F1 áhangendur vakti ég í nótt til að horfa á fyrsta kappakstur ársins í morgun. Það var Ástralíu-kappaksturinn og var hann bara ansi spennandi. Mikið af árekstrum og mistökum, og sakaði ekki að mínir menn, McLaren, tóku fyrsta sæti með undrabarninu Hamilton. En er ég horfði á kappaksturinn fór ég að hugsa um tvennt. Í fyrsta lagi hugsaði ég aftur til besta framúraksturs seinni tíma: Hakkinen og skósmiðurinn voru að hringa Zonta, og fóru þeir sitt hvoru megin við félagann, og stal Hakkinen sigrinum þannig með glæsibrag. Hakkinen var reyndar búinn að standa sig betur í keppninni, en sat fastur fyrir aftan skósmiðinn fram að þessum framúrakstri. Set inn myndskeið af þessu hér fyrir neðan



En síðan fór ég að hugsa um eitt af því sem kynnir keppninnar sagði: Þessar vélar hafa yfir 5000 staka hluti. Fór ég þá að hugsa til thixoforming og spá hvort vélarnar væru ekki miklu sterkari ef hlutunum væri fækkað og þær thixoformed í nánast einu lagi. Þá væru vélarnar sterkari og endingarbetri auk þess sem yrðu mun færri stakir hlutir. Þetta kemur mér sérstaklega til hugar þar sem nýjar reglur kveða á um að vélin og gírkassinn verði að endast í fjórar keppnir. Bara svona smá pæling.

Wednesday, 12 March 2008

Síðasta einkunnin

Síðasta einkunnin er komin í hús. Fékk 72% í PHY111-Our evolving universe. Ansi stoltur af því þar sem verkefnavinnan á önninni var 40% af einkunninni, og voru verkefnin oft mjög erfið. Þetta þýðir að ég er með 77,5% í meðaleinkunn, eða "First". Síðan byrjar páskafríið í næstu viku, og stendur í þrjár vikur. Mútta og Amma koma í heimsókn næsta mánudag, og verða í um tíu daga.
Síðan er ég bara kominn á fullt í verkefninu mínu þessa önnina. Þetta verkefni snýst um Lennard-Jones potential milli atóma og hvernig hegðun atóma sem er skotið á kristal hegða sér raunverulega. Kóðunin fyrir grunnkraftana og svoleiðis er komin vel á veg, og ætti ég að geta sett inn einhver myndbönd af þessu undir lok páskafrísins. Vonandi gengur þetta bara vel. Annars er frekar fátt á döfinni. Allir að fara annað hvort heim eða í sólstrandaferðir.

Sunday, 9 March 2008

Gumslæri

Núna er það komið á hreint að mútta og amma munu koma í heimsókn eftir rúma viku. Það verður gaman að sjá familíuna aftur. Hélt risa dinner á föstudaginn. Eldaði gumslæri fyrir 12 manns og gervikjöt handa grænmetisætunni. Heppnaðist mjög vel, en var þó ekki jafn gott og hjá ömmu.
Annars gengur lífið bara sinn vana gang. Í síðustu viku lærði ég um eitt rosalega áhugavert, þ.e. thixoforming. Þetta er aðferð til vinna málmblöndur. Málmurinn sem út kemur er að meðaltali 4 sinnum sterkari. Þar sem málmurinn er aðeins hlutbráðinn þá skreppur hann minna saman þegar hann kólnar en fullbráðinn málmur. Auk þess hefur hálfbráðni málmurinn rosalega áhugaverða eiginleika. Málmurinn hegðar sér að vissu leiti eins og hunang. Hann heldur föstu formi þar til beitt er krafti, þá er minnsta mál að smyrja honum yfir eitthvað. Set hérna inn myndir af þessum eiginleikum í áli.