Wednesday, 31 October 2007

Hrekkjavaka, og afmæli afa.

Vikan er komin vel á veg og tími til að líta á hvað hefur gerst síðan ég bloggaði síðast. Ekkert!!! Það var frekar róleg helgi og síðan hefur það bara verið námið. Hef verið að vinna undirbúningsvinnu fyrir verkefnið, kynna mér formúlur sem kunna að tengjast verkefninu og safna gögnum um hvernig sé best að snúa sér í forrituninni.
Í kvöld er síðan hrekkjavaka og skilst mér að nokkrir af herbergisfélögum mínum hafi ákveðið að halda teiti í íbúðinni okkar, þannig að það verður erfitt að vakna fyrir tímann kl. 9 í fyrramálið. Við sjáum hvernig það gengur annars. Ég er ekki búinn að finna mér búning, en ef allt annað bregst þá klæðist ég bara grænum buxum, hvítri skyrtu og gleraugum og segist vera Peter úr Family Guy. Þið verðið að viðurkenna að við erum ansi líkir.
Í næstu viku verður síðan "Skills Week". Þá vinnum við í hópverkefni og förum í heimsóknir í fyrirtæki, s.s. JRI, Corus og Guardian Glass. Þetta verður líklegast áhugavert en ég hef samt ákveðnar áhyggjur af því að við þurfum að vera mætt kl 8 eða kl 9 alla dagana. I don't do mornings!!!
Blogga meira þegar eitthvað er að frétta.

Wednesday, 24 October 2007

Skóli, og meiri skóli

Það hefur verið nóg að gera í þessarri viku og það bíður enn meira. Tók mitt fyrsta próf í gær, og gekk alveg sæmilega. Þetta var stjörnufræðipróf, og var svolítið snúið. Síðan er stærðfræðipróf á morgun, sem er alls ekkert áhyggjuefni.
Ég fékk annars verkefnið mitt í gær. Það heitir "Thin film growth modeling" og snýst um að búa til forrit sem getur módelað hvernig þunnar filmur myndast þegar verið er að sprauta efni undir mismunandi hornum og við mismunandi aðstæður. Þetta er gamalt annars árs hópverkefni sem Prof Harding setti fyrir nemendur þegar hann var að kenna við Imperial College London. Til að byrja með verður þetta gert í tvívídd, en eftir áramót verður verkefnið líklega fært yfir í þrjár víddir.
Annars er fátt að frétta, bara meiri skóli, meiri vinna.

Thursday, 18 October 2007

Calm before the storm

Þetta hefur verið róleg vika, en alvaran byrjar samt í næstu viku. Það eru tvö próf og tvö skilaverkefni, þó ekkert til að hafa áhyggjur af.
Ég fékk líka góðar fréttir í vikunni. Fékk að vita það að þar sem ég þarf mæta í stærðfræðitímana, þá ætla þeir að láta mig vinna verkefni í staðinn. Það er ekki alveg búið að ganga frá því hvað það verður, en það verður einhvers konar stærðfræðilegt líkan af atómum í kristalgrind. Semsagt að taka öll ytri áhrif með í reikninginn. Þetta hljómar allavega mjög spennandi. Fæ væntanlega að vita meira á þriðjudag.
Síðan var ég í mjög skemmtilegum verklegum tíma í dag. Við vorum að "sand-steypa" ál (sand-casting). Set inn myndir af verkefninu mínu á morgun.

P.S. Er kominn með Skype, sigmakappa83


EDIT

Saturday, 13 October 2007

Ánægjuleg vika

Þá er enn ein helgin komin, og vikan liðin. Ég fékk ansi ánægjulegar fréttir í vikunni. Á þriðjudaginn fór ég til Dr. Mole út af stærðfræðinni. Hann lét mig hafa síðasta vorpróf og sagði mér að athuga hvernig mér gengi að leysa það. Ég skilaði því inn á miðvikudaginn og á fimmtudaginn fékk ég tölvupóst. Þar kom fram að ég fékk 114 af 125 stigum í prófinu, og að ég myndi sleppa við að sitja stærðfræðina á þessari og næstu önn. Ég þarf samt að skila inn verkefnum og taka prófin, en það er alls ekkert áhyggjuefni. Síðan ætla yfirboðarar deildarinnar að finna eitthvað sniðugt fyrir mig að gera, til þess að mér leiðist ekki. Annars hefur frekar fátt gerst, og allir verið frekar rólegir. Í gærkveldi eldaði Varun eggja karrí rétt handa okkur. Hann var rosalega góður, en ekkert sérstaklega sterkur. Síðan sátum við Varun og Manuela að drykkju með þremur herbergisfélögum mínum fram á nótt, þó var það frekar rólegt. Í kvöld verður síðan farið á "Into Fiesta" sem er svona alþjóðlegt skemmtikvöld í Octagon Centre. Stóru útlendingahóparnir koma með þjóðarrétti og drykki til að bjóða upp á. Það virðast allir úr Internationals week ætla að mæta þannig að það ætti að vera áhugavert.
Að lokum ætla ég að kvarta smá.
  • Hvar sem ókunnugir bretar koma saman mynda þeir röð. Það skiptir ekki máli hvort þeir séu að bíða eftir einhverju, þetta er bara svo sterkt í þeim.
  • Bankakerfið er hrikalega skrítið hérna. Það tekur viku að fá bankanúmerið þitt eftir að þú sækir um reikning. Það tekur aðra vikur til að fá kortið, og þriðju vikuna til að fá PIN númerið. Þetta er sérstaklega skrítið þar sem þú ert með kort sem þú getur ekki notað í viku, áður en þú færð PIN númer. Það er ekki hægt að strauja það neinsstaðar þar sem allar verslanir eru með Chip and Pin posa.
  • Þú færð kort fyrir hvern einasta reikning. Ég sótti um tvo reikninga, debitkortareikning og savings account, með það í huga að ég gæti skammtað mér peninga af einum inn á hinn. En þeir létu mig fá tvö debit kort, annað er merkt CashCard og hitt Reserve CashCard. Sóun á plasti.
  • Erlent ökuskírteini er ekki tekið gilt sem staðfesting á aldri. Það þýðir að ég er alltaf með helvítis passann á mér til þess að geta keypt áfengi.
  • Bílar gefa í þegar þeir sjá manneskju ganga yfir veginn. Þetta er satt. Sérstaklega atvinnubílstjórar. Þegar maður hleypur yfir götuna heyrir maður alltaf í bílum vera að gefa í.

Sunday, 7 October 2007

Spánverji

Þá er fyrstu námsvikunni lokið, og merkilegt nokk tókst mér að lifa hana af. Verð samt að viðurkenna að það var ansi erfitt að koma sér framúr kl 7:30 á miðvikudag og fimmtudag. Búinn að kynnast tveimur kennurum í viðbót, Dr Hyatt sem lítur út fyrir að vera um 25 ára og Prof. Matthews sem er deildarstjóri efnisverkfræði deildar. Það sem hefur komið mér mest að óvart er það hvað allir eru almennilegir. Bjóst fastlega við að kennararnir væru í hálfgerðum fílabeinsturnum, en það er alls ekki svo.
Síðasta föstudag kom kærasta Julian í heimsókn. Hún heitir Miranda og er spænsk. Hún var mjög almennileg á áhugaverð, en merkilegast var þó að persónuleikinn var nákvæmlega eins og persónuleiki Julians. Það var eins og að hafa einn persónuleika í hvoru kyni. Á föstudagskvöldið var áætlunin sú að láta Varun elda, en fékk hann slæman kvebba og treysti sér ekki til að elda. Ég tók það að mér að elda grænmetispastarétt sem var bara skrambi góður. Síðan skelltum við okkur í "afmælispartý" Rich, herbergisfélaga Julians. Frekar fámennt og ómerkilegt, en stóð þar að auki frekar stutt. Eftir það skiptist hópurinn, Miranda og Julian fóru með Rich og félögum í bæinn, meðan Varun, Manuela og ég fórum í partý sem nokkrir úr internationals week voru að halda. Sátum þar langt fram á nótt að spjalla við fólk sem við höfðum ekki séð í tvær vikur. Ég kynntist einnig nokkrum könum og slatta af öðrum. Síðan röltum við V og M heim um fjögurleitið.
Í gærkveldi fórum við út að borða og sátum fram undir miðnætti að spjalla, vantaði bara Manuelu. Vorum á amerískum veitingastað, þar sem japlað var á ekta amerískum steikum.
Þegar ég kom heim ákvað ég samt að gera eitt sem virðist svolítið skrítið. Ég fór að þvo þvott, eftir miðnætti. Þannig standa mál að það er alltaf svo löng bið eftir vélum á daginn, að ég hef frestað því svolítið að þvo þvott. En ég tók bara iPodinn og þvottinn upp í "the Edge", setti í þrjár vélar og sat þar í makindum til 3 um nóttina að þvo þvottinn minn. Núna er semsagt allt orðið hreint og fínt.

Thursday, 4 October 2007

Þá er fyrsta vikan að líða að lokum. Frekar fátt að frétta nema hvað að ég er núna búinn að hitta alla kennarana mína. Flestir tímarnir eru ágætir en stærðfræðin virðist ekkert verða erfiðari. Ég er reyndar búinn að fara í heimsókn til Dr Ojovan, sem stýrir minni gráðu innan deildarinnar, og var hann hæst ánægður með að ég væri sleipur í stærðfræðinni. Hann sagði mér að tala við Dr Niels Mole, yfirmann stærðfræði fyrir verkfræðinga, og semja við hann um hvað ég ætti að gera á önninni. Það verður semsagt næsta skrefið, og geng ég frá því í næstu viku.
Vikan hefur annars verið róleg, fór út að borða í gærkveldi með Julian og Manuela. Fórum við síðan í heimsókn til indversku mafíunnar, og síðan snemma heim. Annað kvöld ætlar Varun að elda ekta indverskan mat handa okkur. Síðan verður líklega kíkt í bæinn.
Smá svona almennt um skólann þessa vikuna. Deildin mín er til húsa í Hadfield byggingunni. Þar er safn sem heitir "The Turner Museum of Glass". Ég hef hangið þar mikið milli tíma, þar sem í safninu er kaffisala og borð. Konurnar í kaffisölunni eru farnar að þekkja mig, þar sem ég hef fengið mér kaffi þar nokkrum sinnum á dag. Það er svolítið sérstakt að sitja þarna með kaffibollann því allir prófessorarnir og kennararnir hanga þar í hléum og spjalla. Þeir eru allir mjög þægilegir og skemmtilegir og hef ég spjallað aðeins við kennarana mína þar.

Í dag hitti ég tutorinn minn, Professor Thomas Schrefl. Hann er merkilega fínn gaur. Ótrúlegt en satt þá gaf hann okkur heimasímann sinn ef ske kynni að við þyrftum að hafa samband. Þetta er sérstaklega merkilegt því prófessorar reyna yfirleitt að komast hjá því að vera tutorar, eða ef þeir neyðast þá reyna þeir að komast hjá öllum samskiptum við nemendur sína.
Smá svona side note um Prof Schrefl. Hann sérhæfir sig í að módela umpólun (já segul) í málmum, og hefur unnið fyrir öll helstu harðadisksfyrirtæki heimsins. Auk þess var hann meðlimur í Fidler hópnum í Vín áður en hann var "keyptur" af USheff.

Monday, 1 October 2007

Barnaskóli

Fór í bíó með fastahópnum í gærkvöldi. Sáum the Big Lebowski, kostaði heil 50 pens. Síðan var okkur boðið í mat til Siddarth, einum af indversku mafíunni. Það var síðasta kvöld pabba hans í Sheffield, þannig að karlinn eldaði ekta indverskan mat handa okkur. Ekkert smá sterkur, en ótrúlega góður. Áhugavert að hitta gamla karlinn, mjög fínn gaur.
Í dag byrjaði skólinn síðan. Byrjaði á "Structure and Bonding of Materials" klukkan 10. Lítur út fyrir að verða áhugaverður kúrs en kennarinn, Prof. I.M. Reaney, eyddi nánast hálftíma á að útskýra vektora og plön án þess að nefna það réttu nafni.
Klukkan 12 var síðan stærðfræði, sem var mesti brandari sem ég hef nokkurn tímann heyrt um. Kennarinn var að útskýra aðgerðir eins og að leggja saman og draga frá (ekki grín). Undir lok tímans nefndi ég við kennarann að ég væri aðeins lengra kominn í stærðfræðinni. Hún spurði hvert ég væri kominn, og nefndi ég þá stigula, margföld tegur, diffurjöfnur og línulega algebru. Vona bara að ég fái að sleppa kúrsinum, eða taka stöðupróf. Ætla að hitta tutorinn minn á morgun til að ræða þetta.
Annars er bara fátt að gerast á næstunni. Bara skóli alla vikuna og síðan kvöldverður með hópnum á föstudagskvöldið.