Saturday, 13 October 2007

Ánægjuleg vika

Þá er enn ein helgin komin, og vikan liðin. Ég fékk ansi ánægjulegar fréttir í vikunni. Á þriðjudaginn fór ég til Dr. Mole út af stærðfræðinni. Hann lét mig hafa síðasta vorpróf og sagði mér að athuga hvernig mér gengi að leysa það. Ég skilaði því inn á miðvikudaginn og á fimmtudaginn fékk ég tölvupóst. Þar kom fram að ég fékk 114 af 125 stigum í prófinu, og að ég myndi sleppa við að sitja stærðfræðina á þessari og næstu önn. Ég þarf samt að skila inn verkefnum og taka prófin, en það er alls ekkert áhyggjuefni. Síðan ætla yfirboðarar deildarinnar að finna eitthvað sniðugt fyrir mig að gera, til þess að mér leiðist ekki. Annars hefur frekar fátt gerst, og allir verið frekar rólegir. Í gærkveldi eldaði Varun eggja karrí rétt handa okkur. Hann var rosalega góður, en ekkert sérstaklega sterkur. Síðan sátum við Varun og Manuela að drykkju með þremur herbergisfélögum mínum fram á nótt, þó var það frekar rólegt. Í kvöld verður síðan farið á "Into Fiesta" sem er svona alþjóðlegt skemmtikvöld í Octagon Centre. Stóru útlendingahóparnir koma með þjóðarrétti og drykki til að bjóða upp á. Það virðast allir úr Internationals week ætla að mæta þannig að það ætti að vera áhugavert.
Að lokum ætla ég að kvarta smá.
  • Hvar sem ókunnugir bretar koma saman mynda þeir röð. Það skiptir ekki máli hvort þeir séu að bíða eftir einhverju, þetta er bara svo sterkt í þeim.
  • Bankakerfið er hrikalega skrítið hérna. Það tekur viku að fá bankanúmerið þitt eftir að þú sækir um reikning. Það tekur aðra vikur til að fá kortið, og þriðju vikuna til að fá PIN númerið. Þetta er sérstaklega skrítið þar sem þú ert með kort sem þú getur ekki notað í viku, áður en þú færð PIN númer. Það er ekki hægt að strauja það neinsstaðar þar sem allar verslanir eru með Chip and Pin posa.
  • Þú færð kort fyrir hvern einasta reikning. Ég sótti um tvo reikninga, debitkortareikning og savings account, með það í huga að ég gæti skammtað mér peninga af einum inn á hinn. En þeir létu mig fá tvö debit kort, annað er merkt CashCard og hitt Reserve CashCard. Sóun á plasti.
  • Erlent ökuskírteini er ekki tekið gilt sem staðfesting á aldri. Það þýðir að ég er alltaf með helvítis passann á mér til þess að geta keypt áfengi.
  • Bílar gefa í þegar þeir sjá manneskju ganga yfir veginn. Þetta er satt. Sérstaklega atvinnubílstjórar. Þegar maður hleypur yfir götuna heyrir maður alltaf í bílum vera að gefa í.

4 comments:

Palli said...

Til hamingju með stærðfræðina! Dr. Mole er 'Hans the Moleman' í mínum huga!

Ertu viss um að bílarnir gefa ekki bara í þegar þú átt í hlut? :D

Sigmundur Korneliusson said...

Þeir eiga vissulega ýmislegt sameiginlegt, gleraugu, tala hægt.

Ég verð kannski að fylgjast með hvað bílarnir gera þegar aðrir hlaupa yfir götur. Gæti verði að íbúum Shef sé illa við mig!!! :-(

Unknown said...

Gaman að sjá að þetta er að ganga vel hjá þér þarna úti! Hlakka til að lesa meira :D

Anonymous said...

Ég endaði líka með einhver bjánaleg kort. Fannst þau svo líka hálf asnaleg. T.d. var eitt kort ekki beint debetkort heldur bara hraðbankakort. Hva, er ég 13 ára eða hvað? Endaði á því að skammta mér alltaf cash (þó svo ég hati að vera með slíkt, sérstaklega klink).

Bílarnir gefa oft í eða eru a.m.k. ekkert að hægja á sér og gefa manni séns. Kannast við það. Bara spurning að venjast því..