Að lokum ætla ég að kvarta smá.
- Hvar sem ókunnugir bretar koma saman mynda þeir röð. Það skiptir ekki máli hvort þeir séu að bíða eftir einhverju, þetta er bara svo sterkt í þeim.
- Bankakerfið er hrikalega skrítið hérna. Það tekur viku að fá bankanúmerið þitt eftir að þú sækir um reikning. Það tekur aðra vikur til að fá kortið, og þriðju vikuna til að fá PIN númerið. Þetta er sérstaklega skrítið þar sem þú ert með kort sem þú getur ekki notað í viku, áður en þú færð PIN númer. Það er ekki hægt að strauja það neinsstaðar þar sem allar verslanir eru með Chip and Pin posa.
- Þú færð kort fyrir hvern einasta reikning. Ég sótti um tvo reikninga, debitkortareikning og savings account, með það í huga að ég gæti skammtað mér peninga af einum inn á hinn. En þeir létu mig fá tvö debit kort, annað er merkt CashCard og hitt Reserve CashCard. Sóun á plasti.
- Erlent ökuskírteini er ekki tekið gilt sem staðfesting á aldri. Það þýðir að ég er alltaf með helvítis passann á mér til þess að geta keypt áfengi.
- Bílar gefa í þegar þeir sjá manneskju ganga yfir veginn. Þetta er satt. Sérstaklega atvinnubílstjórar. Þegar maður hleypur yfir götuna heyrir maður alltaf í bílum vera að gefa í.
4 comments:
Til hamingju með stærðfræðina! Dr. Mole er 'Hans the Moleman' í mínum huga!
Ertu viss um að bílarnir gefa ekki bara í þegar þú átt í hlut? :D
Þeir eiga vissulega ýmislegt sameiginlegt, gleraugu, tala hægt.
Ég verð kannski að fylgjast með hvað bílarnir gera þegar aðrir hlaupa yfir götur. Gæti verði að íbúum Shef sé illa við mig!!! :-(
Gaman að sjá að þetta er að ganga vel hjá þér þarna úti! Hlakka til að lesa meira :D
Ég endaði líka með einhver bjánaleg kort. Fannst þau svo líka hálf asnaleg. T.d. var eitt kort ekki beint debetkort heldur bara hraðbankakort. Hva, er ég 13 ára eða hvað? Endaði á því að skammta mér alltaf cash (þó svo ég hati að vera með slíkt, sérstaklega klink).
Bílarnir gefa oft í eða eru a.m.k. ekkert að hægja á sér og gefa manni séns. Kannast við það. Bara spurning að venjast því..
Post a Comment