Tuesday, 3 June 2008

Long time, no see!!!

Loksins dröslast ég til að skrifa eitthvað. Það er búið að vera brjálað að gera í skólanum fram að prófum, og núna eru prófin sjálf byrjuð. Fór í fyrsta prófið mitt í gær, og gekk bara vel. Þetta var próf í Electrical and Magnetic Properties of Materials. Fer síðan í próf í Thermodynamics and Kinetics á fimmtudag og Introduction to Advanced Materials Processing á föstudag. Síðan er ég með upprifjun í stærðfræði um næstu helgi fyrir þá sem hafa ekkert lært í vetur. Að lokum eru síðan síðustu prófin á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku, stærðfræði og Microstructure and Mechanical Properties of Materials. Þannig að það er ekki of langt í próflok.
Við ætlum síðan öll saman í deildinni út að borða eftir síðasta prófið, og höldum almennilega upp á þetta. Julian er officially hættur í skólanum, ekki búinn að mæta í nein próf, og ætlar að flytja til Madrid á næsta ári. Ætlar að vera hjá kærustunni og læra spænsku á meðan hann ákveður hvað taki næst við. Manuela er búin í prófum og fór heim í gær. Raj er í sömu stöðu og ég, að drukkna í próflestri.
Eftir prófin er það bara að pakka saman, skreppa til Manchester til eins félaga míns um 18. og fljúga heim 20.
Vonandi sakna mín allir mjög mikið!!! ;-D

3 comments:

Anonymous said...

ég sakna þín!! ooog finnst að þú ættir nú að koma fyrr heim til að koma í útskriftina mína, en neiii... ;)
hlakka til að sjá þig

Anonymous said...

Gangi þér vel í prófunum! Hlakka til að sjá þig á gamla Fróni.

PH

Palli said...

Hlakka til að fá þig heim!