Við Julian fórum í verslunarferð um daginn og keyptum hin ýmsu eldhússtól. Við ákváðum að vígja þau með smá kvöldverðarboði, og buðum því Varun og Manuela í mat heima hjá Julian. Keyptum nauta sirloin og slatta af grænmeti og ætluðum síðan að kaupa góða rauðvínsflösku. Það varð hins vegar ekki af því þar sem ég var ekki með passann minn meðferðis og fór afgreiðslumaðurinn fram á að við sýndum báðir skilríki við áfengiskaupin. Við enduðum því með að fá Varun til að sjá um veigarnar. Eldamennskan var ansi flókin þar sem pottarnir og pönnurnar voru frekar í minni kanntinum fyrir fjóra skammta, en tókst þó að lokum. Maturinn reyndist hinn ágætasti fyrir utan það að kjötið var af lægri gæðaflokki og því ansi gúmmíkennt.
Eftir matinn dróg Manuela okkur heim til vinkvenna sinna í Opal 2 húsaþyrpingunni. (Við höfðum fengið kynnast þeim stelpum á þriðjudaginn síðasta). Satt best að segja þá náðu hóparnir engan veginn saman þar sem þær voru að REYNA að vera svona fágaðar og fínar en við aðeins að skemmta okkur og djóka. Því fór að lokum svo að ég, Varun og Julian stungum af um miðnættið og fórum heim að sofa.
Í kvöld héldu ég, Varun og Julian Die Hard maraþon þar sem við horfðum á þrjár myndir í röð. Við pöntuðum okkur pizzur og drukkum bjór og gos fram undir miðnætti. Tveir indverjar bættust í hópinn fyrir síðustu myndina, Siddartha og Adidthia (alls ekki viss hvort ég skrifi nöfnin rétt). Þegar við ætluðum að halda heim á leið hittum við hóp af indverjum sem voru á leið á djammið. Þeir buðu okkur að slást með í hópinn, og endaði það svo að ég var einn með sannkallaðri indverskri mafíu það sem eftir var nætur. Verð að segja að það er ansi áhugavert að upplifa kvöld sem minnihlutahópur, sérstaklega þar sem þeir skiptu reglulega (og að þeirra sögn óvart) yfir í að tala hindi sín á milli.
Allavega við ætluðum að kíkja á stað sem heitir Nylon, en þegar þangað var komið var ömurleg tónlist í gangi og héldum við því heim til eins þeirra til að halda djamminu áfram. Þar spiluðum við texas hold-em fram á nótt og skemmtum okkur konunglega. Við Varun vorum fyrstir til að tapa öllum spilapeningunum okkar og fórum við því heim um fjögurleitið, en hinir héldu áfram að spila. Vara við að myndin hér að neðan kom ansi illa út, en þetta er semsagt meiri hlutinn af indversku mafíunni.
3 comments:
Haha indverska mafían er skæð. Hef lent í henni. Það er málið með indverjana að þeir fjölga sér þegar þú lítur undan. Einn verður 2, tveir verða 4 o.s.fr.
Fyrr en varir ertu umkringdur!
hehe snilld...
já fágaðar stelpur... alltaf gaman af þeim.. verð samt að segja að ég held að ég sé skemmtilegri :)
á annars ekkert að fara að læra?
vissulega ertu það!!! Skólinn byrjaði bara 1. október.
Post a Comment