Biðst enn einu sinni afsökunnar á þessu bloggleysi. Ég skal núna fara yfir síðustu vikuna.
Mánudagur, síðasta prófinu lauk kl 15:30. Ég Raj, Julian og Manuela fórum út að borða saman. Eftir það fórum við Manuela heim til mín og fórum á hörkufyllerí með sambýlismönnum mínum (Julian og Raj voru að fara í próf). Ópal-skot fram eftir nóttu, og almennt gaman.
Frekar fátt gerðist síðan fram á föstudag. Á föstudeginum fórum við Matt og Ryan til Leeds og Saltaire. Skoðuðum Saltaire og Hockney safnið. Síðan var farið á Whitelocks pöbbinn í Leeds, stofnaður 1705. Við skoðuðum líka the Corn Exchange, áhugaverða byggingu sem minnir helst á loftbelg. Síðan gerðist ekkert fram á sunnudagskvöld. Þá hitti ég nokkra deildarfélaga, og voru veglegar veigar hafðar um hönd. Skólinn byrjaði síðan á mánudaginn. Áfangarnir virðast mun áhugaverðari en á síðustu önn.
Í kvöld hittumst við Manu, Julian, Raj og Yuan (kærasta Raj í heimsókn frá Malasíu). Fórum á pöbb og skemmtum okkur konunglega. Það er gott að vera kominn með hópinn almennilega saman á ný. Síðan er skóli fram eftir viku og síðan verður hörku-gaman hjá okkur á föstudagskvöld þegar við ætlum að elda og skemmta okkur saman.
Annars er lífið bara gott... nóg gaman framundan.
Wednesday, 13 February 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Velkominn aftur í bloggheima og góða skemmtun um helgina :)
Saltaire? Er það ekki kex?
Gaman að heyra aftur frá Sheffield!
Post a Comment