Fór í bíó með fastahópnum í gærkvöldi. Sáum the Big Lebowski, kostaði heil 50 pens. Síðan var okkur boðið í mat til Siddarth, einum af indversku mafíunni. Það var síðasta kvöld pabba hans í Sheffield, þannig að karlinn eldaði ekta indverskan mat handa okkur. Ekkert smá sterkur, en ótrúlega góður. Áhugavert að hitta gamla karlinn, mjög fínn gaur.
Í dag byrjaði skólinn síðan. Byrjaði á "Structure and Bonding of Materials" klukkan 10. Lítur út fyrir að verða áhugaverður kúrs en kennarinn, Prof. I.M. Reaney, eyddi nánast hálftíma á að útskýra vektora og plön án þess að nefna það réttu nafni.
Klukkan 12 var síðan stærðfræði, sem var mesti brandari sem ég hef nokkurn tímann heyrt um. Kennarinn var að útskýra aðgerðir eins og að leggja saman og draga frá (ekki grín). Undir lok tímans nefndi ég við kennarann að ég væri aðeins lengra kominn í stærðfræðinni. Hún spurði hvert ég væri kominn, og nefndi ég þá stigula, margföld tegur, diffurjöfnur og línulega algebru. Vona bara að ég fái að sleppa kúrsinum, eða taka stöðupróf. Ætla að hitta tutorinn minn á morgun til að ræða þetta.
Annars er bara fátt að gerast á næstunni. Bara skóli alla vikuna og síðan kvöldverður með hópnum á föstudagskvöldið.
Monday, 1 October 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Leggja saman og draga frá segiru... Ok.
Maður er nú vanur því að fyrsti tíminn getur verið mjög basic í mörgum kúrsum þó að kúrsinn sjálfur sé erfiður. Það er bara málið að fólk er með svo mismunandi bakgrunn að ef að kennarinn minnist allavega ekki á það sem er rökréttur fyrirrennari kúrssins geta sumir orðið eftir frá byrjun.
En margföldun og deiling ætti að vera basic ;)
Lattu mig kannast við þetta. Það fyrsta sem við fórum yfir voru ójöfnur. Nú síðast áttu margir MJÖG erfitt með að skilja keðjuregluna í diffrun. :P
sterkur matur segiru... líklega eitthvað sterkara en við fengum á indian mango bíst ég við.. þó það hafi nú alveg verið ágætlega sterkt að mínu mati :p
já gott að sjá að skólin er loks byrjaður þarna úti!
btw þú mátt nú alveg commenta á síðunni minni sko...
Post a Comment