Tuesday, 23 September 2008

Sheffield WOOHOOOOOOOO!!!!

Jæja.... þá er maður kominn aftur til Sheffield. Lenti í langri röð í passaskoðuninni, en slapp samt ágætlega vel gegnum allt kerfið. Sem betur fer beið John eftir mér hinu megin (hefði annars þurft að bíða í tvo tíma eftir lest). Ég gisti síðan hjá honum fyrstu nóttina. Um tvö leitið flutti ég síðan inn í nýju íbúðina. Hún er helvíti flott, og þá sérstaklega herbergið mitt. Það er ekkert smá flott, á sama skala og herbergið mitt á Látraströndinni. Síðan er baðherbergið svo stórt að hægt væri að setja inn tvíbreitt rúm. Ætli það verði ekki gestaherbergið mitt :-D. Annars er fátt annað að frétta. Set inn nokkrar myndir af herberginu að lokum. Læt síðan heyra í mér þegar ég hef komið mér almennilega fyrir.



3 comments:

Anonymous said...

vá hvað þetta er mikið pláss!! þú hefur ekkert með þetta pláss að gera!! svo ég kem og flyt inn við tækifæri! :)

Sigmundur Korneliusson said...

Einmitt... þú lætur mig bara vita þegar þú ætlar að flytja inn.

Anonymous said...

Þetta klósett er svo fáránlegt. Eina í stöðunni er að koma fyrir nuddpotti þarna. Annars er þetta bara skilgreint sem fatlaðraklósett.