Wednesday, 7 May 2008

Góðar og slæmar fréttir

Byrjum á þeim góðu... fór á fund með Prof. Harding í dag varðandi verkefnið. Var í vandræðum með að reikna hitaleiðni. Eftir að ha nn kom með nokkrar mögulegar lausnir á vandamálinu stakk ég upp á því að hitabreyting, og þarmeð hitaleiðni, myndi fylgja vísisfalli þegar hitinn er að jafnast út í filmu með greinilegan hitastigul (temperature gradient). Hins vegar sagði Harding að honum hefði aldrei dottið þetta í hug, og hafði aldrei heyrt um þetta í tengslum við svona módel. Hann sagði að þetta ætti að virka, eðlisfræðilega, og vildi endilega að ég prófaði þetta.
Síðan eru tvennar slæmar fréttir. Í fyrsta lagi, síðasta föstudag hitti ég hinn íslendinginn í UShef. Ég var bara á göngu eftir Glossop Road á leiðinni í skólann, og allt í einu fer einhver að tala íslensku við mig. Þetta er kona sem er að taka, ég held master, í public relations. Þetta skiptir ekki svo miklu máli, nema hvað að þegar ég var að rannsaka háskóla útilokaði ég umsvifalaust alla skóla þar sem ég vissi að íslendingar væru í námi. Ég vildi ekki enda á því að hanga bara með íslendingum.
Seinni slæmu fréttirnar eru að Julian er að spá í að hætta í skólanum. Honum finnst fagið sitt svo leiðinlegt, og langar til að fara til Munchen í tölvuleikja-nám. Þótt það gæti örugglega verið eitthvað sem hentaði honum vel, held ég að hann sé ekki alveg að skilja að fyrsta árið er yfirleitt það leiðinlegasta sama hvaða námi maður er í. Þetta myndi þýða að ég missti einn af bestu vinum mínum hérna og framtíðar herbergisfélaga. Ég vona bara að hann verði ánægður með hvað sem hann gerir.

4 comments:

Anonymous said...

já bömmer ef Julian hættir... en svona eru hlutirnir, margir verða að prufa sig áfram til að komast að framtíðar draumi sínum...
en já annar íslendingur, haha, hún á pottþétt eftir að stokka þig núna! svo þið getið verið einu íslendingarnir SAMAN ;)

Sigmundur Korneliusson said...

Ég var mikið að spá í að stofna íslendingafélag hérna þar til ég frétti af henni. Vildi fá peninga frá skólafélaginu og fá ókeypis djamm fyrir mig og félagana.

Óskar Ingi said...

Simmi minn, ég verð að hryggja þig með því að ég var að skoða viðskiptadeildina í skólanum þínum (sem ég vissi ekki að þú værir í fyrr en ég fann bloggið þitt) fyrir MSc. Svo á tímabili var Íslendingafélagið þitt í mögulegri hættu á áfengismissi til 3ja aðila. En þar sem stefnan er núna tekin á Svíþjóð þá getur andað léttar og farið í gegn með plönin þín með félagið:D Vona allt sé gott ;)
Heilsa frá Malasíu
Óskar Ingi

Palli said...

Já leiðinlegt að frétta af Julian. Fyrsta árið er alltaf leiðinlegt í BS.

Fannst íslendingafélags hugmyndin frábær! Verst að einhver þurfti að eyðileggja það :/