Byrja á því að nefna að ég er búinn að fá þrjár af fjórum einkunnum, "óformlega". Þær voru aðeins lægri en ég var að vonast, en ég kvarta ekki.
Structure and bonding: 70%
Functional materials: 68%
Engineering Mathematics: 100%
Síðan ætla ég að leggja fram spurningu fyrir vísindaáhugamennina: Hvar er heitasti staðurinn í sólkerfinu?
Margir myndu segja inni í sólinni... en það er víst ekki rétt. Heitasti staðurinn í sólkerfinu er í Culham, Oxfordshire. Þar er rannsóknastöð sem er að vinna í kjarnasamrunarannsóknum með það í huga að skoða möguleika á orkuframleiðslu. Plasmað sem er inni í tokamakinum þeirra nær um 100 milljóna gráða hita. Ég fór nefnilega á kynningu á kjarnasamruna-raforkuframleiðslu á vegum deildarinnar síðasta miðvikudag. Það var rosalega áhugaverð kynning, og kom í ljós að tvö af þremur helstu vandamálunum sem eru enn óleyst eru efnisfræðilega. Þar að auki var sýnt video af flæðimódeli í einum rúmsentímetra af plasmanu. Það tók öflugustu tölvu heims, BlueGene/L viku að reikna keyra þetta módel.
Annars verður þetta frekar hæg helgi... Julian ætlar að elda mat handa okkur í kvöld... síðan bara rólegt annars.
Friday, 22 February 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
5 comments:
Til hamingju með þessar einkunnir. Ef ég man rétt (mér er nú aðeins farið að förlast) tákna 70% og yfir "First".
PH
Til hamingju með einkunnirnar!
Til hamingju! Ég kommentaði víst við seinustu færslu um plasmað. Vúps.
Ég er ekki að ná þessu orði: tokamakinum.
Tokamaki? Hljómar eins og japanska.
Tokamak er reyndar rússnesk skammstöfun sem lýsir hýsingu sem inniheldur rafgas (plasma) á snúningsferli í segulsviði.
Post a Comment