- Advanced Materials Technology - Fjallar um þrjá efnisflokka; Gler, Stál og Fjölliður. Þetta er rosalega áhugaverður áfangi og snýst um eiginleika og framleiðslutækni þessarra efna.
- Functional Materials II - Skipt í tvo hluta, rafmagnseiginleika efna annars vegar og seguleiginleika efna hins vegar. Virðist ansi áhugavert fag.
- Where to? How Fast? - eða á venjulegu máli Thermodynamics and Kinetics. Mjög skemmtilegir kennarar og virðast þeir ætla að tengja þetta að miklu leiti við önnur fög.
Síðasta föstudag fórum við Raj og Julian að ganga frá íbúð fyrir næsta ár. Við verðum í nýrri byggingu sem heitir Aspect 3. Því miður þurftum við þó að fara í 4 herbergja íbúð, þannig að við verðum með annan herbergisfélaga. Konan sem verður umsjónamaður byggingarinnar stakk upp á að koma stelpu fyrir hjá okkur, þar sem við töldum henni trú um að við værum ekki fólk sem væri á stanslausu djammi. Það verður áhugavert að sjá hvort stúlkukindin þoli að búa með þremur gaurum... með sjúkan húmor.
Um kvöldið fórum við í mat til Manuelu, og sötruðum öl fram eftir nóttu. Á laugardagskvöldið fórum við Manuela út að borða á afrískum/karabískum veitingastað það var svolítið fyndið þar sem allt var skreitt fyrir Valentínusardaginn, og loftið var farið að minnka í blöðrunum. Um kvöldið fórum við síðan að sötra hvítvín og horfa á Family Guy. Síðan fórum við niður á næstu hæð að drekka með nágrönnum okkar.
Í dag fór ég að hitta Prof. Harding. Hann var rosalega ánægður með verkefnið mitt á síðustu önn og sagði að þetta hefði verið "First", semsagt hæsti einkunnarflokkur. Það eina sem hann setti út á verkefnið er að ég númeraði ekki myndirnar, og notaði kommur á einum stað í útreikningum (þeir nota punkta1/4 = 0.25). Síðan fórum við að spjalla um næsta verkefni. Ég á að skoða svokallað Lennard Jones Model og Verlet algorithm, og líklegast verður það verkefnið mitt. Ég byrja á því að gera þetta í tvívídd og ef það gengur vel fæ ég að yfirfæra það í þrjár víddir. Hins vegar tekur það svo mikla vinnslu þannig að ég get fengið aðgang að 60 Intel Opteron Cluster til að keyra módelið. Allir tölvunarfræðingar ættu að slefa núna. Þetta er þó gamli clusterinn, er ekki nógu mikilvægur fyrir nýja clusterinn. Annars verður þetta spennandi önn.
Núna ætla ég að setja inn nokkrar áhugaverðar staðreyndir sem ég hef lært síðustu viku.
- 90% af stáltegundum voru hannaðar á síðustu 10 árum
- Til þess að gera bestu sverðin þurftu járnsmiðir að nota vatnslausn sem innihélt mikið af kolefni til að kæla sverðið. Þess vegna stungu þeir sverðunum í gegnum þræla og dýr til að kæla þau.
- Ástæðan fyrir sífellt hækkandi álverði er það að í sífellt fleiri rafmagnssnúrum er verið að nota ál í stað gamla koparsins. Auk þess eru litlar líkur á því að álið klárist á næstu nokkur þúsund árum
- Varmaleiðnifræði (Thermodynamics) er mest hataða fag meðal verkfræðinga.
- Á síðustu 2 mánuðum hefur deildin mín fengið 6,7 milljónir punda í rannsóknarstyrki frá fyrirtækjum.
4 comments:
já ég er ansi hrædd um að þessi stelpa sem á að búa með ykkur viti ekki hverju hún á von á... þetta verður spennandi að sjá :)
hvað meinaru með að stinga sverðum gegnum þræla? þegar þeir voru að búa þau til??? eða þegar þau voru tilbúin? skiptir kannski ekki máli fyrir greyið þrælana...
Sverðinu var stungið í gegnum þrælana á meðan það var glóandi heitt. Þetta var svona hringferill: hita sverðið > hamra sverðið > stinga í þræl til að kæla það!!! Hefur einhver áhuga á þessu starfi.
já.. næs... gátu þeir ekki notað vatn?? hvurslags er þetta... en já kannski maður taki þetta starf af sér... eða ekki... :p
Hld að Tommi geti notað þessar upplýsingar fyrir næsta sverð sem hann býr til!
Annars er þetta töff með kjarnasamrunann og clusterinn :D
Post a Comment