Friday, 21 September 2007

Núna er föstudagur og ég ætti að vera að flytja inn í íbúðina mína. Því miður verður ekki af því í dag þar sem þær eru "ekki tilbúnar". Þeir gera samt ráð fyrir að við getum flutt inn á morgun svo ég er sæmilega sáttur. Ég ætla að flytja til Jóns á eftir og gista þar í nótt. Herbergisins hér á Ranmoor House verður sko ekki saknað. Eins og myndirnar gefa til kynna eru þau ekki upp á marga fiska.









Í kvöld er síðan dinnerinn með öllu fína fólkinu úr háskólanum og borginni. Mér skilst meira að segja að borgarstýran verði viðstödd.
Þetta er nóg í bili. Blogga næst þegar ég er kominn í íbúðina í Birchen

2 comments:

Anonymous said...

Hva er maður bara bloggandi um hánótt?! Hvað ætli móðurmyndin segi við þessu, ha? ;)

PH said...

Sæll, frændi.

Hvernig stendur á því að allt það sem mamma þín og systir skrifa kemur fram hjá mér sem ólæsileg tákn (þ.e. íslensku stafirnir)?

En vertu duglegur að blogga - allir vilja fylgjast með.

Gangi þér vel og góða skemmtan.
PH