Tuesday, 18 September 2007

Fyrsta bloggfærslan

Jæja, núna er ég búinn að vera í Sheffield í nokkra daga. Reyndar aðeins þrjá á garði. Ég er að taka þátt í International Orientation, þannig að við erum öll sett saman í Ranmoor House. Það er gamall og ömurlegur garður sem á að rífa um áramótin. Ég er búinn að kynnast helling af nýju fólki, en hef mest hangið með þýskurunum. Það er fjandi mikið af þjóðverjum að læra hérna, þótt Asíubúarnir séu mannmestir.
Sá sem ég hef kynnst mest af öllum heitir Julian Fritz og er Þjóðverji/Svisslendingur. Sérstakur en mjög fínn gaur. Set inn mynd af honum síðar.
Það hefur allt gengið að óskum hingað til, nema hvað að ég komst að því rétt áðan að ég verð í herbergi með tveimur helv**** könum. Annar lítur út eins og 15 ára mömmustrákur og hinn eins og versti hasshaus. Geri ekki ráð fyrir að ég hangi mikið með þeim í framtíðinni.
Framundan er heilmikið djamm í kvöld og fram undir morgun. Síðan er morgundagurinn frekar opinn. Á föstudaginn flytjum við síðan af þessum garði og á þá sem við verðum á það sem eftir er árs. Það kvöld er síðan "black tie" dinner með öllum stórlöxunum í skólanum.
Læt heyra meira í mér síðar í vikunni

3 comments:

ingaher said...

SÆLL MINN KÆRI, GAMAN AÐ HEYRA Í ÞÉR EÐA RÉTTARA SAGT LESA UM ÞIG.´´AKVAÐ AÐ STOPPA AÐEINS Á SKRIFSTOFUNNI OG SÁ ÞÁ PÓSTINN FRÁ ÞÉR.
EKKI MEIRA Í BILI NEMA ALLT GOTT HÉR.

PH said...

Sæll, frændi!

Gaman að fylgjast með námsmanni í Bretlandi - það er svo fjandi langt síðan maður var það sjálfur!

Gangi þér allt í haginn - mun fylgjast með síðunni.

Bestu kveðjur,

PH

Palli said...

Frábært að fá að fylgjast með.

Velkominn í bitrann heim bloggsins!