Það hefur verið ansi áhugavert að hlusta á íslenska og breska fjölmiðla er efnahagur okkar hrinur. Þegar ég skrifa þetta þá hefur Kaupþing, síðasti íslenski bankinn, einnig hrunið. Var einmitt að heyra í Ingó B., frænda, í viðtali við BBC Worldservice um Kaupþing. En ég nenni ekki að fara nánar út í fjárhagslega heilsu Íslands.
Vikurnar hafa liðið hratt hérna úti. Var veikur meiri hluta síðustu viku með einhverja leiðindaflensu. Ég hef þó að mestu leiti jafnað mig á henni, þótt ég sé enn hóstandi. Skólinn virðist mun áhugaverðari en á síðasta ári. Það er mun hnitmiðaðra námsefni í ár, þá sérstaklega varðandi framleiðsluaðferðir. Síðan eru verklegu tímarnir mun áhugaverðari. Á þriðjudaginn fengum við að leika okkur með SEM (rafeindasmásjá). Okkur var kennt að stilla smásjána og fókusa á mismunandi hluti. Síðan eigum við að mæta í næstu viku með einhverjar tillögur að hlutum til að taka myndir af með smásjánni og vinnum síðan verkefni út frá því sem fyrir valinu verður. Eftir það fáum við kynningu á TEM (Tunneling electron microscope). Við fáum þó ekki að vinna verkefni með þeirri smásjá. Hins vegar snúum við okkur að "reverse engineering" á ýmsum daglegum hlutum, þar sem farið verður í almennar framleiðsluaðferðir og göllum þeirra. Annars er frekar fátt að frétta. Læt heyra í mér seinna.
P.S. Ég er kominn með netsíma og númerið er 4991001.
Thursday, 9 October 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Damn, það er mjög töff að fá að leika sér með SEM og TEM. Ég á bók með fullt af flottum myndum teknar með slíkum smásjám. Man ekki hvað hún heitir en hún byrjar með myndum af minnstu hlutunum en svo er fókusinn rólega tekinn út og endar þetta svo í myndum af himingeiminum. Sem sagt farið í both extremes. Frábær bók.
Já hljómar vel. Reverse engineering gæti líka verið mj0g töff!
Post a Comment