Saturday, 12 April 2008

Hitt afmælið

Úfff.... ég er að jafna mig eftir tvöfalt afmælisparty í gær. Matt átti afmæli í dag, og ég náttúrulega um síðustu helgi, og héldum við risa party til að halda upp á það. Matt er greinilega mikið afmælisbarn... þar sem drengurinn bakaði kökur og fjárfesti í tveimur borðum til að geta spilað beer pong. Annars var bara djammað fram eftir nóttu og mættu um 30-40 manns. Nokkrir úr deildinni minni gáfu mér síðan afmælisgjöf, beer brewing kit, sem inniheldur allt sem þarf til að búa til bjór, nema kannski baðker. Þetta var mjög gaman.

Annars er fyrstu viku eftir páska lokið. Skilaði af mér tveimur verkefnum og fór á fundi með tveimur kennurum. Síðasta mánudag greip ég Dr Palmiere eftir tíma til að spyrjast fyrir um "grain growth" módel sem hann hafði sýnt nokkru áður. Var bara ekki að átta mig alveg á því hvernig þetta virkaði og vildi vita meira. Maðurinn leit á mig eins og ég væri geðveikur að spyrja um eitthvað svona, en samþykkti loks að senda mér gögn um þetta. Síðan var fundur með Prof. Harding. Hann var mjög ánægður með það sem ég hafði gert. Síðan sýndi hann mér eitt af því sem hann var að vinna í. Þetta voru rannsóknir á ákveðnu próteini sem á þátt í myndun skurnar á eggjum. Þetta var brjálæðislega flókið prótein og er módelið svo flókið að í sumar þegar verkefninu er lokið mun það hafa tekið um 20% af tölvuvinnslutíma í UK-Universities-Supercomputer fyrir heilt ár.

Ég á stundum til að fá "æði" fyrir ákveðnum efnum og lesa allt sem ég finn um þau. Í síðustu viku byrjaði gengja-æði. Ég fann tvær heimildarmynda-seríur um gengi og varð algjörlega sjokkeraður. Eitt af því sem hafði þessi áhrif á mig var aldur margra sem voru í þessum gengjum og hvað þetta fólk var alveg sátt við að deyja eða enda í fangelsi. Jafnvel ungt fólk úr ágætlega vel stæðum fjölskyldum talaði um alvarlega glæpi sem það framdi eins og ekkert væri sjálfsagðara. Maður trúði varla hversu blint þetta fólk var. Það merkilegasta var þó að nánast allir lögreglumennirnir sem talað var við sögðu að þegar þeir fóru að spyrja meðlimi gengjanna af hverju þeir væru í gengjunum eða hvað þeir ættu sameiginlegt með gengjunum gátu þeir ekki svarað. Merkilegt hvað það er auðvelt að vera svona blindur fyrir sannleikanum.

1 comment:

Palli said...

Ég er líka svona. Tek heimildarmynda-æði. Nylega hef ég skoðað, meðal annars, fjöldamorðingja, tele-vangelista og braselísk dópgengi.