Tuesday, 1 April 2008

Aleinn

Jæja, þá eru mæðgurnar farnar, og ég aleinn og yfirgefinn. Það var rosalega gaman að fá þær, og var John mjög góður að keyra út um allt með okkur. Fékk einnig afmælisgjafir á meðan dömurnar voru í heimsókn, golfkylfur, skór, hanskar og kúlur auk þess sem amma færði mér innrammað kort af Skandinavíu. Nú tekur við lærdómur í viku áður en skólinn kemst aftur á skrið. Á laugardaginn verður síðan matarboð að miklu leiti í boði múttu og ömmu. Þar mun ég bjóða upp á hangikjöt, graflax og reyktan silung, auk veglegra veiga.
Á sunnudaginn var fór ég síðan og vígði nýja golfdótið. Fór til Moor View Golf Centre og sló þar 360 kúlum á æfingasvæðinu. Gekk ekki svo rosalega illa, miðað við hvað það er langt síðan ég tók í kylfu. Trén neituðu að fljúga beint og langt, voru eitthvað hægri-sinnuð þennan daginn. Aðrar kylfur reyndust betur og var gekk mjög vel með wedge-in. Ég stefni á að reyna að finna kennara á næstu viku og fá aðstoð við að leiðrétta sveifluna. Það má geta þess að innan marka Sheffield er ansi margir golf vellir: Hallamshire, Hillsborough, Beauchief, Abbeydale, Concord, Birley Wood, Dore & Totley, Lees Hall, Tinsley Park auk vallanna í Rotherham og Doncaster. Ætla að reyna að vera tilbúinn að spila fyrir sumarið, og reyna að spila eitthvað heima. Þegar ég kem aftur hingað í haust ætla ég að ganga í klúbb reyna að spila mikið næsta vetur.
Annars er fátt að frétta. Læt heyra í mér undir lok viku.

P.S. Reglubreytingar í F1 eru gerðar til að ekki sé of mikill munur milli liðanna hvað tæknina varðar. Auk þess er verið að leggja áherslu á færni ökumanna.

2 comments:

PH said...

Til hamingju með afmælið!
PH & ÁP

Anonymous said...

Einmitt. Ætlaði að lauma á þig einni afmæliskveðju, degi of seint... (sem er allt í lagi þar sem allir dagar þar sem maður er þunnur teljast ekki með!).