Annars gengur lífið bara sinn vana gang. Í síðustu viku lærði ég um eitt rosalega áhugavert, þ.e. thixoforming. Þetta er aðferð til vinna málmblöndur. Málmurinn sem út kemur er að meðaltali 4 sinnum sterkari. Þar sem málmurinn er aðeins hlutbráðinn þá skreppur hann minna saman þegar hann kólnar en fullbráðinn málmur. Auk þess hefur hálfbráðni málmurinn rosalega áhugaverða eiginleika. Málmurinn hegðar sér að vissu leiti eins og hunang. Hann heldur föstu formi þar til beitt er krafti, þá er minnsta mál að smyrja honum yfir eitthvað. Set hérna inn myndir af þessum eiginleikum í áli.




3 comments:
Mmmm.. álálegg á brauðið mitt!
Gumslæri stendur alltaf fyrir sínu! Svo geturðu bráðum sýnt félögunum hver lét þig fá uppskriftina!
PH
Magnaður skítur!
- HP -
Post a Comment