Eins og aðrir F1 áhangendur vakti ég í nótt til að horfa á fyrsta kappakstur ársins í morgun. Það var Ástralíu-kappaksturinn og var hann bara ansi spennandi. Mikið af árekstrum og mistökum, og sakaði ekki að mínir menn, McLaren, tóku fyrsta sæti með undrabarninu Hamilton. En er ég horfði á kappaksturinn fór ég að hugsa um tvennt. Í fyrsta lagi hugsaði ég aftur til besta framúraksturs seinni tíma: Hakkinen og skósmiðurinn voru að hringa Zonta, og fóru þeir sitt hvoru megin við félagann, og stal Hakkinen sigrinum þannig með glæsibrag. Hakkinen var reyndar búinn að standa sig betur í keppninni, en sat fastur fyrir aftan skósmiðinn fram að þessum framúrakstri. Set inn myndskeið af þessu hér fyrir neðan
En síðan fór ég að hugsa um eitt af því sem kynnir keppninnar sagði: Þessar vélar hafa yfir 5000 staka hluti. Fór ég þá að hugsa til thixoforming og spá hvort vélarnar væru ekki miklu sterkari ef hlutunum væri fækkað og þær thixoformed í nánast einu lagi. Þá væru vélarnar sterkari og endingarbetri auk þess sem yrðu mun færri stakir hlutir. Þetta kemur mér sérstaklega til hugar þar sem nýjar reglur kveða á um að vélin og gírkassinn verði að endast í fjórar keppnir. Bara svona smá pæling.
Sunday, 16 March 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Bið að heilsa gestunum.
P
Já, það er á hreinu að þetta er flottasti framúraksturinn í sögu F1. Gaman að sjá hann aftur.
Hvað er málið með að vera alltaf með nýjar reglur!
blogga meira...það hafa liðið tvær vikur, og IH og MÁ eru engin afsökun!
Post a Comment