Voðalega er gaman þegar svona margir kvitta á síðuna!!! Sömuleiðis gaman að heyra frá öðrum Englandsfara. Btw. Kiddi, manstu eftir Ellen/Ellen, manstu eftir Kidda.
Fór, eins og í hverri viku, til Dr. Harding á föstudaginn. Hann hefur umsjón yfir verkefninu mínu, þannig að ég hitti hann vikulega og fer yfir það sem ég hef gert. Ég er búinn að skrifa kóðann fyrir helminginn af verkefninu mínu, og ætti að klára restina í næstu viku. Ég sýndi honum keyrslu á forritinu fyrir "Random deposition" og "ballistic deposition" og sagði hann að hann væri hæstánægður með frammistöðu mína. Síðan nefndi hann að ég ætti að íhuga hvað ég myndi vilja gera eftir áramót, byggja ofan á þetta verkefni eða fara í eitthvað nýtt. Ég sagðist vera til í hvort sem er, en myndi alls ekki afþakka að læra eitthvað nýtt. Hann kom með nokkrar tillögur, en nefndi síðan að það væri reyndar farið nánar í þetta efni á 3 og 4 ári. Múhahaha!!!
Síðan var helgin bara frekar róleg, bara horft á DVD og spilað Wii á kvöldin. Lærði þó yfir daginn. Framundan er algjör verkefnamartröð. Það eru 5 vikur eftir af önninni, og á þeim tíma eru 6 skilaverkefni, 2 próf, 1 ritgerð og náttúrulega skýrsla úr verkefninu mínu. En maður huggar sig bara við það að maður hefur haft það ansi gott hingað til. Þar að auki fer tímunum fækkandi þegar nær dregur jólafríið, þar sem flestir kennararnir ætla sér að klára efnið snemma.
Monday, 19 November 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Fyndið að þú segir Dr Harding. Það væri eins og að hafa kennara á íslandi sem héti Dr Jónsson eða eitthvað.
Just a thought.
Þetta er allt svo formlegt hérna, alveg eins og í USA. Þar kallaði maður engan sem maður þekkti ekki mjög vel með fyrsta nafninu. Það gæti líka valdið vandræðum að tala um Dr Harding sem John, þar sem hann er einn af 5 John í deildinni.
Post a Comment