Wednesday, 14 November 2007

Bloggfrí

Það er þónokkuð síðan ég bloggaði síðast, en það hefur þónokkuð gerst síðan þá. Í síðustu viku var skills week. Við hlustuðum á fyrirlestra frá IOM3 og fleirum varðandi okkar fag. Síðan kynntist ég nokkrum eldri nemendum sem höfðu farið í "placement" á síðasta ári. Ansi áhugaverðir guttar. Síðan fórum við í heimsóknir til Corus í Scunthorpe, Guardian Industries í Goole og JRI hér í Sheffield. Það var ansi áhugavert að þeir voru að reyna að "selja" okkur fyrirtækin á fyrsta árinu okkar. Það var verið að tala um möguleg tækifæri hjá fyrirtækjunum og meðallaun. Síðan unnum við hópverkefni, sem ég reyndar gerði nánast einn þar sem hinir stóðu sig ekki í stykkinu. Við enduðum í 3 sæti af 6, sem var ekki svo slæmt því hluti af einkunninni var að allir leggðu eitthvað fram. Síðan kom Palli í heimsókn yfir helgina. Það var haldið smá teiti heima hjá mér á föstudagskvöldinu, og var nóg um drykkju og sora. (Hvað sem Palli segir, þá spillti ég honum ekki, hann gerði það sjálfur). Síðan fórum við á Varsity á laugardagskvöldið og héldum okkar striki áfram. Á sunnudeginum fórum við síðan með John í bíltúr um Derbyshire, til að taka eitthvað af myndum. Þá fékk Palli loksins að sjá að það er meira en bara næturlíf í Sheffield, einnig fögur náttúruverndarsvæði. Síðan sendum við hann til London á Sunnudagskvöldinu. Annars var bara helgin góð, að mínu mati.
Á mánudeginum fór ég síðan og keypti sjónvarp fyrir íbúðina. 37" Samsung frá John Lewis varð fyrir valinu, og kostaði það 649 pund. Það var síðan ansi skondið að þegar ég kíkti á heimasíðu John Lewis í gær var búið að hækka verðið um 100 pund!!!
Annars er fátt planað á næstunni, líklegast bara DVD kvöld um helgina.

6 comments:

Palli said...

Takk fyrir frábæra helgi! Eftir að ég kom á St Pancras í London villtist ég í undergroundinu í einn og hálfan tíma (tók 3svar vitlausa lest!) og ég kenni uppsafnaðri þynnku um :D

Sigmundur Korneliusson said...

Ég samhryggist með að týnast í Lundúnum. Vonandi ertu búinn að jafna þig eftir helgina! ;-)

Anonymous said...

Nú líst mér á þig (að blogga loksins). Ég var orðinn úrkula vonar um að heyra meira af ævintýrum þínum í Bretaveldi. Stattu þig strákur, haltu þessari síðu gangandi!

En bestu kveðjur og gangi þér vel í náminu.

PH

Unknown said...

'Eg er einmitt 'a leidinni 'a Varsity, bjorinn a eitt pund a eftir 7 a fimmtudogum a campus. Ekki slaemt ad geta farid a barinn med eitt klink og fengid tvo bjora :)

Anonymous said...

Simmi, gaman að lesa frásagnir frá heimaslóðum Engilsaxa!

Ég verð að viðurkenna að þú ert mun heppnari en ég. Ég hef upplifað það tvisvar að kaupa hlut á ákveðnu verði. Farið svo á heimasíðuna, hjá þeim sem ég keypti hlutinn af, daginn eftir og séð hann ódýrari.

Anonymous said...

jey loksins blogg :)
hélt að þú værir drukknaður í verkefnum, eins og ég er þessa dagana, nóg að gera og prófin nálgast óðum :/
en annars er ekkert að frétta af mér, hef ekki ráðist á neinn niðrí bæ síðan ég hringdi í þig síðast svo ég er stillt :)