Friday, 23 November 2007

Afmæli

Þá er önnur vika að líða, og ég sit í leiðinlegast tíma vikunnar. Áfanginn heitir Microstructure and Mechanical properties of materials, og er kenndur af Prof. Matthews (deildarstjóri Engineering Materials). Fyrir utan það að við sitjum áfangann með Aerospace fólkinu, sem þýðir að við erum 100-150, þá er yfirferðin hans svo asnaleg að maður lærir ekkert af því. Hann er maður sem á að halda sig við rannsóknir, og hætta að kenna.
Síðasta miðvikudag átti Julian afmæli. Hann er nú orðinn tvítugur, og við héldum upp á það með glæsibrag. Við gáfum honum þ.a.a. afmælisgjöf, Löwepro Slingshot myndavélatösku. Hann var hæstánægður með hana. Síðan gaf móðir kærustunnar hans honum svítu í London handa þeim yfir þessa helgi. Þar sem þau hittast aðeins á nokkurra mánaða fresti þá verður gaman hjá þeim um helgina. Annars er frekar fátt framundan, bara vinnuhelgi og meiri vinna í næstu viku,

2 comments:

Palli said...

hvað er slóðin á heimasíðu Julians, með myndunum?

Anonymous said...

þú ert slakur bloggari, litli bróðir :P á ég kannski að blogga fyrir þig? þú segir mér bara hvað ég á að skrifa á Skypinu ;)